|
Er Facebook að útrýma bloggi? |
|
föstudagur, 03 apríl 2009 |
|
Já það er spurningin - er Facebook hreinlega að koma í staðinn fyrir bloggið? Fólk notar fésið eins og blogg, koma sínu skoðunum á framfæri og svo miklu miklu meira en það. Ég finn það sjálfur að þörf mín fyrir þetta blogg hér hefur minnkað mikið, nota það aðallega til að segja fréttir af Ástu og Bjarka, já og svo fössið annað slagið. Innlitum hefur einnig fækkað þónokkuð, spurning hvort það sé út af facebook eða fólk bara komið með leið á El Dorado hyskinu, held samt ekki eða vona það allavega. Sjálfur les ég blogg lítið, kíki stundum á þessa hlekki hér til hliðar, misreglulega þó, sennilega út af því að ef maður vill fylgjast með vinum og kunningjum þá kíkir maður á það á hinu magnaða apparati Facebook. Þeir sem ekki eru á facebook eru bara alls ekki kúúl. Annað sem hægt er að velta fyrir sér en það er hið ömurlega moggablogg. Ég held að vitleysan sem þar er í gangi (allavega 99% af þessu liði) hafi komið gríðarlegu óorði á blogg almennt. Vissulega eru ennþá til góðir bloggarar en þeim fer því miður fækkandi og veit ég um nokkra sem sett hafa pennann í pennaveskið og nota facebook í staðinn og kannski er það bara allt í lagi, enda er mikið líf og fjör yfirleitt. Þetta er þó ekki kveðjubréf, heldur bara smá pæling. Þetta blogg verður alltaf til, allavega til að færa fréttir af The Eds og svo auðvitað the occasional Fuzzquiz, sem btw er í fríi í dag. En það er ljóst að Facebook hefur breytt netheiminum, til batnaðar...
|