El Fösskvisó
föstudagur, 27 mars 2009

Eftir myndrænt og skemmtilegt Föss í síðustu viku snúum við okkur aftur að tónlistinni.  Í dag er spurt um flytjanda og nafn á sex lögum og ræður kassagítarinn ríkjum, sem er viðeigandi þar sem að helgin er handan við hornið og allir á leiðinni í kassagítarspartý.  Ekki rétt...

Svo fer að styttast í færslu þar sem að fösskvis er hvergi nálægt, kominn tími á það.

Fösskvis er hér í dag.  Eins og síðustu þrjár vikur þá er þetta í léttari kantinum í dag.

Góða helgi.

 
Föstudagsgetraunin Fösskvis
föstudagur, 20 mars 2009

Fösskvis vikunnar er kvikmyndagetraun. Spurt er um nafn á 6 kvikmyndum og er þetta í léttari kantinum, ætti allt að vera frekar auðvelt en vonandi skemmtilegt, enda að okkar mati frábærar klippur.  Talið er ekki alveg í synci í öllum brotunum og hafði tæknideildin ekki tíma til að laga það en vonandi truflar það ekki...

Svörin geta svo þátttakendur sent í brúnu umslagi á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it .

Verðlaunin þessa vikuna er eintak af leik Man Utd og Liverpool sem fór fram þann 14. mars 2009... :p

Þar sem að tæknideildin er ekki búin að uppfæra kerfið upp í 1.5 þá getum við ekki sýnt klippuna hérna en þið finnið hana á youtube, ca. hér:

Fösskvis 20. mars 2009

---leiðrétting---

Youtube og FOX höfnuðu þessu fösskvisi, þykjast eiga eitthvað í þessu. (This video is no longer available due to a copyright claim by FOX.)

Fösskvisið má núna finna hérna. Ekki heimsins bestu gæði en duga...

 
Fösskvis snýr aftur
föstudagur, 06 mars 2009

Loksins segja sumir, andskotin kannski einhverjir og what??? segja nýliðar.  EdTV hefur ákveðið að hefja leik aftur með hinn fornfræga leik, Fösskvis.  Frægðarsól Fösskvis skein hæst 2006 þegar þátttakendur voru tæplega 50 í viku hverri en síðan fór Mr. Fuzz að þyngja getraunirnar og þátttakendum fækkaði mjög.  EdTV leysti Hr. Föss undan samningi seint á árinu 2007 og hefur hann drukkið bjór, hlustað á tónlist og klórað sér í pungnum síðan.  Þar til í síðustu viku þegar EdTV ákvað að gefa honum séns en þó með því skilyrði að hafa þetta létt og skemmtilegt.  Allt fyrir smá monning, sagði Hr. Föss...

Nóg af upprifjun, skellum okkur í Fösskvis.  6 lög og er einfaldlega spurt um nafn flytjanda og lags.  Það skal tekið fram að þetta er í léttari kantinum...

Endilega sendið svörin á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it .  Verðlaun eru veitt öllum sem fá fullt hús.  Í verðlaun þennan föstudaginn er nýja platan frá U2, No line on the Horizon, ekki slæmt það...

Fösskvis 6. mars 2009 er hér.

 
© El Dorado 2001-2007 íMail