Fréttaskot
föstudagur, 27 febrúar 2009

Já sveimérþá.  Eftir marga fundi hefur verið ákveðið að rífa Hr. Föss fram úr rúmminu en þar hefur hann verið í alltof langan tíma.  Föstudaginn 6. mars verður sem sagt nýtt Fösskvis hjá okkur, aðallega til okkur sjálfum til skemmtunar en vonandi taka einhverjir þátt.  Stefnt er að því að hafa þetta aðeins fjölbreyttara en síðast, þ.e. ekki bara tónlistargetraunir...

 Eníhú, föstudagurinn 6. mars markar endurkomu Fösskvis.  Engin verðlaun, engin keppni, bara gaman...

Fréttalestri er þá lokið.

 
Smá update
föstudagur, 06 febrúar 2009

Ekki mikið í gangi hjá okkur í El Dorado.  Við Bjarki í góðum gír heima en eum þó duglegir að fara út að viðra okkur.  Fórum t.d. í vikunni út að leika í snjónum og fannst Bjarka það mjög gaman.  Svo hittum við Hödda og Atla Berg einu sinni í viku og sækjum líka Ástu oftast á Múlaborg þar sem að það er smá vinnutörn hjá Önnu.  Annars eru allir bara stuði...

Látum svo tvær myndir fylgja með...

Bjarki á Úlfarsfellinu
Bjarki fagnar því að vera kominn upp á risastórt fjall...

Bjarki að róla á Múlaborg - Ástu var svo kalt á rassinum að hún gat ekki setið lengur...
Bjarki og Ásta voru að róla saman en það var klaki í rólunni Ástu...

 
© El Dorado 2001-2007 íMail