Óumdeild ríkisstjórn Karls Hr.
mánudagur, 26 janúar 2009

Ég var byrjaður á rosalegu bloggi en tók mér 3 mín pásu, kíkti á facebook og sá þar að Kalli var búinn að blogga um nákvæmlega það sama.  Ég nenni því ekki að klára mína ríkisstjórn, set frekar link á bloggið hans hérna:  Óumdeild ríkisstjórn Karls Hr.

Það skal tekið fram að þetta er birt án samþykkis Karls Hr. en við vonum að honum sé sama...

 
Nágrannar
föstudagur, 16 janúar 2009

Það er engin laus við nágranna og oft fylgir þeim mikill hávaði, þó mis mikill.  En það er alveg magnað hve lélegan tónlistarsmekk allir nágrannar virðast hafa, í rauninni alveg ótrúlegt.  Ég hef aldrei lent í því að nágranni sem er með tónlistina í botni, sé að spila eitthvað af viti.  Yfirleitt er þetta eitthvað teknó frá helvíti, dauðarokk, eitthvað fm957 drasl eða þaðan af verra.  Aldrei hef ég átt nágranna sem spilar t.d. Coldplay hátt og snjallt eða U2, Sigur Rós eða bara Sálina, það væri strax skárra.

Spurning hvaða ályktun maður eigi að draga af þessu, sennilega er nágranninn bara að reyna að pirra mann eða kannski fá mann til að flytja burt, hef samt enga trú á því.  Kannski er ég bara svona óheppinn með nágranna.

Djöfull væri ég til í að hafa mig sem nágranna, þá væri stuð...

 
Þá árið er liðið (þótt fyrr hefði verið...)
miðvikudagur, 07 janúar 2009

Planið var að fara yfir liðið ár en ég nenni því ekki.  Það voru ups and downs en ég kýs bara að einblína á það jákvæða, t.d. Bjarkalingur kom í heiminn og sló í gegn, tónleikar með Damien Rice á Nasa (fór upp á svið og þambaði bjór með kallinum) og svo bestu tónleikar sem ég hef farið á; Sigur Rós í höllinni 23. nóv, það var geggjað.  Þetta er allavega það sem ég man eftir í augnablikinu.

Núna er komið 2009 og bara stemmning í Marteinslauginni.  Anna farin aftur að vinna og Ásta á Múlaborg og við Bjarki bara heima, í allavega tvo mánuði eða þangað til Bj kemst inn til dagmömmu.  Þannig að það er bara bjart fram undan, Scrubs líka að byrja aftur og Liverpool efstir í deildinni...

Endum þennan stutta pistil svo á smá uppgjöri:

Besta plata ársins:  Með suð í eyrunum spilum við endalaust - Sigur Rós
Besta erlenda plata ársins:  Only by the night - Kings of Leon
Besta lag ársins:  Inn í mér syngur vitleysingur - Sigur Rós
Tónleikar ársins:  Sigur Rós í Laugardalshöll
Kvikmynd ársins:  Into the wild (hún er reyndar síðan 2007 en var frumsýnd 2008 á ísalandinu)
Mest spilaðasta hljómsveitin (samkvæmt Last.fm): Sigur Rós
Mest spilaðasta platan (samkvæmt Last.fm): Narrow stairs - Death cab for cutie
Mest spilaðasta lagið (samkvæmt Last.fm):  Jungle drum - Emiliana Torrini

Segjum þetta gott...

 
© El Dorado 2001-2007 íMail