Gleðileg Jól!
þriðjudagur, 23 desember 2008

The Eds óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári...

Vonandi hafið þið það gott um jólin - lesið sem mest, borðið sem mest, slappið af sem mest en aðallega njótið þess að vera með fjölskyldunni...

Ásta & Bjarki
Mynd úr jólamyndatökunni í ár, hjá Snæþóri (SSH Photos)

 
Jólin koma
mánudagur, 15 desember 2008

Met hefur verið slegið.  Aldrei hefur liðið eins langt á milli blogga og nú. Tæpur mánuður án bloggs er ekki fallegt met.  Vonandi hefur þetta ekki skemmt jólaundirbúningin hjá ykkur...

Það er eitthvað svo mikið í gangi þessa dagana að fréttaskeytin hafa legið óhreyfð eða hreinlega óskrifuð á skrifborðinu en úr því verður bætt fljótlega, svona öðru hvoru megin við jólin.

Af El Dorado genginu er bara gott að frétta.  Ásta og Bjarki alltaf hress og kát og bæði rosalega dugleg.  Bjarki er alveg ótrúlegur drengur, getur dundað sér endalaust á gólfinu, ferðast um allt hús og lætur ekkert heyra í sér nema þegar hann er svangur eða búinn að kúka, gaman að því. 

Stóra systir hans er alltaf jafn uppátækjasöm og alveg ótrúlega gaman að henni.  Við vorum t.d. á leiðinni heim um daginn í bílnum og hún var að syngja Bráðum koma blessuð jólin en hún breytti textanum aðeins í lokin.  (Hún sá nefnilega í einhverri búð um daginn músaspil og það er það eina sem hana langar í í jólagjöf og talar mikið um það.)  Lagið endaði svona:  Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta Músaspil.  Ég hló svo mikið að ég keyrði næstum því á ljósastaur...

Meira var það ekki í bili - farið varlega í jólastressinu og munið að njóta jólanna, þau verða búin áður en en þið vitið af...

Ásta og Bjarki í myndatöku hjá SSH Photos

 
© El Dorado 2001-2007 íMail