Sveitaferð
fimmtudagur, 20 nóvember 2008

The Eds lögðu land undir fót á föstudaginn og heimsóttu Mikka og co en það var fyrir löngu orðið tímabært.  Það var líka löngu tímabært að yfirgefa þessu kreppu sem ríkir hérna á suðvestur horninu.

Helgin var alveg frábær, gaman að hitta M&S aftur og sjá krakkana okkar leika sér saman og svo var líka gaman að éta allan matinn sem var eldaður/bakaður ofan í mann, þvílík snilld.  Það er samt ekki spurning hvað stóð upp úr; gæsin sem var matreidd á laugardagskvöldið var algjörlega himnesk, held barasta besta kjöt sem ég hef smakkað.  Gæsin var í rauninni það góð að ég, anti skotveiðimaðurinn, ætla að rölta með Mikka einhvern tímann upp á einhverja heiðina til að sækja svona kjöt, kannski ekki endilega að skjóta gæsirnar sjálfur en allavega bera kvikindin heim.  Ég fór á villibráðahlaðborð í Perlunni tveimur dögum áður sem var meiriháttar gott en gæsin á Hvammstanga var ennþá meira meiriháttar...

Það verður að viðurkennast að síðan Ásta fæddist hefur maður alltaf verið meira og meira til í að flytja út á land aftur og þessi helgi var ekkert að hjálpa við það að bæla þá tilfinningu...

Endum þetta svo á lagi.  Eflaust hafa flestir heyrt þetta lag en það gæti verið að einhver þarna úti hafi ekki heyrt þetta frábæra bítlalegalag, þetta er fyrir hann...

Sprengjuhöllin - Byjrum upp á nýtt (Bestu kveðjur)

 
Bloggleysi
miðvikudagur, 12 nóvember 2008

Bloggleti í gangi.  Þar sem að ég neita að ræða blessað efnahagsástandið þá virðist ekki vera mikið eftir til að tala um eða hvað?

Á ég að blogga um tónlist?  Anna er þessa stundina á útgáfutónleikum með Sprengjuhöllinni.  Ég er að fara á Sigur Rós á sunnudaginn í næstu viku, hlakka ógeðslega mikið til, enda eru þeir "bestir á balli" eins og skáldið sagði...

Fótbolta?  Liverpool eru efstir í deildinni ásamt Chelsea, efast um að einhver muni eftir því hvenær við vorum efstir í nóvember síðast.  Vonandi náum við að halda þetta út en ég er mjög bjartsýnn...

Vinnuna?  Við í skemmtinefnd SG vorum með Hrekkavökuviku í síðustu viku sem heppnaðist hræðilega vel og talaði engin um kreppuna, sem var frábær tilbreyting.  Hrekkjavökuvikunni var svo slúttað með alvöru hrekkjavökuballi í SG þar sem að The Scary Monster Band lék fyrir dansi, minn spilaði á bassann, í fyrsta skiptið en Hreimur spilaði á gítarinn...

Bíó?  Er ekki skylda að sjá Bond í bíó?  Ætlaði líka að sjá Reykjavík - Rotterdam en einhvern vegin gengur það ekki upp...

Mat?  SG fólkinu er boðið í Perluna á fimmtudaginn.  Samkvæmt heimasíðu Perlunnar er villibráðahlaðborð, það hljómar vel...

Nei annars ég hef ekkert af viti að segja, þannig að ég sleppi því bara...

Bendi svo áhugasömum á það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúið Ástu og Bjarka, ekki margar en nokkrar, kreppan virðist hafa áhrif víða...

 
© El Dorado 2001-2007 íMail