|
miércoles, 29 octubre 2008 |
|
Það getur ekki verið kreppa ef maður er svona ríkur... 
|
|
|
lunes, 20 octubre 2008 |
|
Bara svona til öryggis ef að þetta skyldi hafa farið fram hjá einhverjum - þáttinn má nálgast hér. 
Já það er gaman að þessu... ps. það er ákveðið vandamál með myndaalbúmin í augnablikinu en verið er að vinna í því...
|
|
|
miércoles, 08 octubre 2008 |
|
El Dorado hefur séð sinn skerf af kreppum í gegnum aldirnar og er því ríkur af reynslu. Hér eru nokkur ráð: | | Hættu að éta hráskinku í morgunmat, eldaðu frekar hafragraut. | | | Segðu upp Stöð 2 og Stöð 2 sport 1 til 6, downloadaðu bíómyndum og þáttum í gegnum torrent síður og sjáðu liverpool leikina á næsta pöbb. | | | Fáðu þér aukavinnu í gegnum netið, fáðu borgað í t.d. evrum. Búðu til auglýsingar fyrir fyrirtæki, skirfaðu ritgerðir fyrir framhaldsskólakrakka í austurríki eða á spáni, strippaðu fyrir einmanna kalla í tékklandi, láttu þér detta eitthvað í hug. Auglýstu þig á facebook. | | | Droppaðu í heimsókn til vina og vandamanna seinni partinn, reyndu að draga heimsóknina fram yfir kvöldmat. | | | Segðu upp internetáskriftinni (ef vinnan þín er ekki að borga hana) og hakkaðu þig inná netið hjá grunlausum nágranna, það er í rauninni mjög auðvelt, kíktu bara á youttube. Athugaðu það bara áður en þú segir internet áskriftinni upp. | | | Gleymdu American style í hádeginu, sættu þig við mötuneytið í vinnunni þinni, þ.e. ef þú hefur ennþá vinnu. | | | Hættu að hringja í 118, notaðu gömlu góðu símaskránna. | | | Mundu, humar er bara borðaður í góðæri, ekki kreppu... |
Glöggir lesendur hafa sjálfsagt tekið eftir því að fátt á þessum lista hefur átt við á fyrri kreppum en listinn ef nýlega uppfærður. Hann er ekki allur birtur - þeir sem vilja fá nánri upplýsingar verða að staðgreiða í evrum, tveimur slíkum. Svo er líka hægt að gefa skít í þessa kreppu, tapa sér í t.d. korputorgi eða bara fara til spánar og vona svo að ríkið bjargi þér þegar að skuldadögum kemur. Einnig er hægt að fara til topp-kallanna í bönkunum, sem væntanlega eiga botnlausa bankareikninga einhversstaðar í veröldinni, og biðja þá um aðstoð, þeir taka pottþétt vel á móti þér...
|
|
|
viernes, 03 octubre 2008 |
|
Tökum nettan visir.is á fyrirsögnina, sennilega ömurlegasta vefritið þarna úti eða allavega fólk í fréttum hlutinn. Eníhú, það eru engin verðlaun fyrir að fatta hvaða línurit þetta er: 
Sennilega hafa sjaldan eða aldrei jafnmargir horft á stefnuræðu forsætisráðherra eins og í gær, sem er mjög skiljanlegt. Ég horfði á góðan hluta af umræðunum og beið eftir svörum, sem þó voru fá. Steingrímur J var langflottastur þarna og ég hreinlega beið eftir því að hann færi með Maístjörnuna; það eru erfiðir tímar, það er atvinnuþref... Já það eru erfiðir tímar en eins og skáldið sagði forðum: allt tekur enda. Vonandi að það verði eitthvað eftir þegar þessu líkur... ps. það eru nýjar myndir í albúmi barnanna
|
|
|