Allt fyrir ástina?
föstudagur, 26 september 2008

Páll Óskar söng fyrir stuttu Allt fyrir ástina, ég tók hann á orðinu og eiginlega gott betur.  Ég fór á Mamma Mia með Önnu í vikunni.  Ég er nokkuð viss um að Palli átti ekki von á þessu...

Allavega, myndin sem slík er nokkuð ömurleg en ég skal viðurkenna það að tónlist Abba getur nú verið hressandi þannig að ég var ekkert að deyja þarna í Laugarásbíó en söngleikjamyndir eru ekkert fyrir mig.  Gott dæmi um það hve mikið mér leiðist söngleikir, í hvaða formi sem er, er að ég hef ekki séð söngleikjaþáttinn í Scrubs, 6. þáttur af 6. seríu, þó hef ég séð alla Scrubs þætti rúmlega tvisvar.

Síðan er Anna góður félagsskapur og poppið var gott, þannig að þetta var bara hin þokkalegasta kvöldstund...

 
3ja ára afmælisstelpa
fimmtudagur, 25 september 2008

Ásta á afmæli í dag, orðin 3ja ára gömul.  Hún er algjör snillingur hún Ásta, kann að skrifa nafnið sitt, þekkir alla stafina, kann að telja upp á 5 á ensku (þökkum Dóru fyrir það) og svo er hún bara ótrúlega dugleg og mikið krútt, heimsins mesta krútt.

Hún, ásamt litla bróður sínum, er tilgangur lífsins, svo einfallt er það...

Ásta afmælisstelpa

 
10 undarleg afrek ungs siglfirðings...
mánudagur, 22 september 2008

...handahófskennd og úr ýmsum áttum. 

 Ælt í saltan sjó - ekki nóg að bara míga í hann
 Hætt með tveimur stelpum á lækjargötunni á siglufirði, þó ekki báðum í einu
 Verið 2x dumpað af sömu stelpunni, bæði skiptin af vinkonu hennar, annað skiptið í gegnum síma
 Hætt að vera með vini sínum af því að mamma hans og mamma annars vinar sögðu hann ekki góðan félagsskap, sem var bara bull
 Var einu sinni "höstlaður" af söngkonu í popphljómsveit
 Yfirgaf fjölskylduna 15 ára vegna alkahólista, þar á meðal 5 ára systur sína - sér endalaust eftir því
 Hætt með tveimur stelpum á körfuboltavelli
 Fékk fyrsta launaseðilinn sinn sumarið 1985, þá 11 ára gamall
 Lærði á gítar, aðallega til að pikka upp stelpur - það svín virkaði
 Káraði fjölbraut á 11 önnum á 7 ára tímabili - það var alltof gaman í fjölbraut

Og þar hafiði það...

 
Litlu púllararnir mínir
miðvikudagur, 03 september 2008

Bara svo að það sé á hreinu, þá eru Ásta og Bjarki púllarar.

Bjarki púllariÁsta púllari
Myndin af Bjarka var tekin í gær, myndin af Ástu var tekin 14. maí 2006.

Því miður er engin mynd til af Önnu í Liverpool búning en það er í vinnslu...

 
© El Dorado 2001-2007 íMail