|
fimmtudagur, 28 ágúst 2008 |
|
Finnst engum öðrum en mér það tóm þvæla að ætla að blogga um handbolta í 10 daga streit...? Maður verður samt að standa við gefin loforð. Einhvern vegin verð ég að gera þetta eitthvað áhugavert. En það er ekki í dag, það er ljóst. Kannski á morgun, enda er föstudagur á morgun...
|
|
|
Hetjurnar koma heim í dag |
|
miðvikudagur, 27 ágúst 2008 |
|
Handboltalandsliðið fær höfðinglegar móttökur þegar það kemur heim í dag - rennur niður Laugaveg eins og kafbátar og endar svo í mikilli stemmningu upp á Arnarhól. Eða hvað? Ég hef nefnilega smá áhyggjur af þessu, þjóðin er svo vön að styðja strákana sína fyrir framan sjónvarpið og þar sem að "heimkoman" verður sýnd í sjónvarpinu þá er mjög líklegt að flestir verði límdir fyrir framan tv-ið, í landsliðstreyjunum sínum og með fánana sína og fagna hetjunum. En verðum við ekki að vona að fólk hylli hetjurnar á Laugaveginum, eins og þeir eiga svo sannarlega skilið... Nei, ég nenn´ ekki að fara...
|
|
|
þriðjudagur, 26 ágúst 2008 |
|
Frétt tekin af rúv.is: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, greindi frá því í morgun í fjölmennri móttöku hjá sendiherra Íslands í Kína, að ákveðið hefði verið að sæma landslið karla í handknattleik, þjálfara þess og formann HSÍ, hinni íslensku fálkaorðu. Ólafur Stefánsson, fyrirliði liðsins, var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir fjórum árum. Hann fær nú stórriddarakrossinn sem og Guðmundur Guðmundsson, þjálfari liðsins, og Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður HSÍ. Hinir 13 leikmenn liðsins fá riddarakrossinn. Allt gott og blessað en ég bara spyr: ætti ekki Dorrit líka að fá riddarakrossinn fyrir sitt framlag en kellingin fór líka á kostum þarna í kínalandi... 
|
|
|
mánudagur, 25 ágúst 2008 |
|
Fyrstu sekúndurnar eftir tapleikinn í gær leið manni eins og við hefðum ekki unnið silfur heldur tapað gullinu en það var í raun fljótt að hverfa. Það að ná 2. sæti á ólympíuleikunum er stórkostlegur árangur, skítt með það að við séum rétt rúmlega 300.000 manna þjóð, þetta er árangur sem hvaða þjóð myndi sætta sig við. Spánverjarnir eru t.d. mjög ánægðir með sitt brons. Ed er nú ekki mikill handboltaáhugamaður en hafði samt mjög gaman að þessu, sá meira að segja 2 heila leiki og er bara stoltur af strákunum okkar og stoltur af því að vera íslendingur, eins og alltaf. Jæja þá er handboltabloggi nr. 1 lokið - þetta verður áhugavert... 
|
|
|
föstudagur, 22 ágúst 2008 |
|
Ed er lítill handboltaáhugamaður, hefur t.d. ekki ennþá séð heilan leik á þessum ólympíuleikum. Geri samt ráð fyrir að ég horfi á leikinn í dag, eins og sennilega 97% þjóðarinnar en búast má við því að þjóðfélagið lamist á meðan þessum leik stendur. Svo er bara spurning hvernig leikurinn fer, ef við vinnum þá fer allt á hvolf en ef við töpum þá er alltaf leikurinn um þriðja sætið... En á meðan við erum með Óla Stef í okkar liði þá getur ekkert klikkað, hann er með þetta allt á hreinu, eins og sjá má í viðtalinu sem tekið var við hann eftir pólverjaleikinn en það má sjá HÉR! Já, þetta er gott dæmi um áhrif góðs gengis íslenska handboltalandliðsins á ólympíuleikunum - Ed með jákvætt handboltablogg, hverjum hefði dottið það í hug....? Ef við fáum verðlaun á þessum leikum þá skal ég blogga um handbolta í 10 daga stanslaust... Áfram Ísland!
|
|
|
|