|
mánudagur, 30 júní 2008 |
|
Eitt skemmtilegasta fótboltamót í manna minnum lauk í gær með sigri spánverja. Klárt mál að besta liðið, og það skemmtilegasta, sigraði. Einnig er gaman að benda á pistil frá 28. maí þar sem við fullyrðum að Spánn vinni mótið - af hverju setti maður ekki eins og eina milljón á það. Þorsteinn Joð fór líka á kostum í sínum EM þáttum, hann gerði þetta skemmtilega mót ennþá skemmtilegra. Já og Fernando Torres er bestur... 
Kveðja úr haustinu á Akureyri...
|
|
|
mánudagur, 23 júní 2008 |
|
Aðalfréttin úr Marteinslauginni er að sjálfsögðu sú að Ásta er búin að vera hjá ömmu sinni á Akureyri síðan á miðvikudaginn og er hún virkilega ánægð með þá heimsókn og saknar mömmu, pabba og Bjarka lítið, hún má varla vera að því að tala við okkur í símann. Vonandi vill hún koma með okkur aftur heim þegar við förum að sækja hana... Bjarki er orðinn stór og sterkur og er rosalega duglegur, heldur haus og veltur sér á bakið þegar hann er settur á magann, geri ráð fyrir því að hann verði farinn að labba áður en sumarið er úti, eða svona næstum því... Svo er Ed sjálfur kominn í sumarfrí og það helvíti gott sumarfrí eða fram yfir verslunarmannahelgi en júlí er tekinn í fæðingarorlof. Ekkert ferðalag er planað nema þegar prinsessan verður sótt í vikunni. Vonandi hagar veðrið sér vel í sumarfríinu... Svo verðum við aðeins að minnast á EM. Bara þrír leikir eftir og það verða ekkert smá leikir. Allt gengur samkvæmt spám ennþá, spánverjarnir komnir í undanúrslit og koma til með að mæta þjóðverjum í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Fyrir mótið spáðum við Torres markakongstitlinum með 5 mörk, El Niño skuldar okkur því 4 mörk. 2 mörk í undanúrslitunum og 2 í úrslitaleiknum og málið er dautt... Þangað til næst... ps. hvað er með þessa ...? 
|
|
|
mánudagur, 16 júní 2008 |
|
Maí mánuður er fyrir löngu kominn á netið en ég gleymdi að linka í hann en núna er það búið og gert. Þar með líkur þessari tilkynningaskyldu. Stutt og laggott... Hæ hó og jibbíjei!
|
|
|
mánudagur, 09 júní 2008 |
|
Mánudagar geta verið fólki erfiðir, margir höndla þá hreinalega ekki og hringja sig inn veika. Til að hressa upp á mannskapinn ætlum við að bjóða upp á þrjú lög, hvert öðru skemmtilegra. Við byrjum á Sigur Rós en ný plata með þeim kemur út 23. júní en einhverra hluta vegna höfum við eintak í höndunum. Lagið sem við bjóðum upp á af Með suð í eyrunum spilum við endalaust heitir Inní mér syngur vitleysingur og er stórkostlega hressandi, klárlega besta lagið sem ég hef heyrt í ár. Þetta er svona "feel good" lag... Sigur Rós - Inní mér syngur vitleysingur Svo er það Death cab for cutie en eins og allir tónlistarunnendur vita gáfu þeir úr plötuna Narrow Staris fyrir nokkru og er það snilldar verk. Tvö lög af þessari plötu fylgdu síðustu færslu og hér er eitt til viðbótar. Textinn í No Sunlight er frekar dimmur en lagið er hressandi og kemur manni í stuð... Death Cab for Cutie - No Sunlight Endum þetta svo á einni af allra vinsælustu hljómsveitunum í El Dorado í gegnum tíðina, Coldplay. 17. júní kemur út fjórða plata þeirra, sem ber nafnið Viva la Vida og bíð ég spenntur eftir því að hlusta á hana. Titil lagið er flott og ætti að geta pumpað einhverju lífi í þá sem eru að jafna sig eftir helgina, hinir hækka í botn, standa upp og dansa... Coldplay - Viva la Vida Já, þetta er hressandi. Svo er flottur dagur á EM í dag og síðan byrja Spánverjarnir á morgun og sólin væntanleg, allt að gerast bara...
|
|
|