Bolti og tónlist
miðvikudagur, 28 maí 2008

Alltof langt síðan það hefur verið rætt um bolta hérna.  Bætum um úr því strax, enda stórmót framundan.  7. - 29. júní verður mikil veisla hjá áskrifendum rúv og má búsast við því að fyrirtæki loki klukkan fjögur þá daga sem leikir eru, nema kannski sportbarirnir.  Skynsamt fólk verður í sumarfríi á þessum tíma og þeir allra skynsömustu verða í Sviss eða Austurríki.  Ed verður hvorugt enda vinna framkvæmdastjórafrúr ekki mikið, bara eitthvað rétt fram yfir hádegið...

El Dorado verður undirlagt í litum spánverja, spænska fánanum verður flaggað, spænska eingöngu töluð og ekkert drukkið nema San Miguel en augljóslega munum við styðja spánverjana til sigurs í keppninni.  Þar fremstur í flokki fer Fernando Torres, besti striker í heimi.  Reyndar verður Gerrard ekki með honum en hann verður að láta Fábregas, Alonso, Xavi og Iniesta duga.

Það er alltaf mikil pressa á spánverjum fyrir hvert stórmót en ávallt hafa þeir klikkað (nema Euro ´64) en verður þetta mótið sem þeir ná loksins að vinna?  Veðbankinn í El Dorado telur það og er reyndar ekki í neinum vafa, enda eru þeir með hrikalega sterkt lið - frábæra markverði, góða vörn, klassa miðju og svo besta striker í heimi.  Spánverjar hafa nú samt ávallt verið með stekt lið en það sem gerir útslagið núna er að það hafa aldrei verið fleiri Liverpool menn í liðinu eða fjórir...

Þetta verður skemmtilegt sumar.

Smá af tónlist í lokin.  Death Cab for Cutie gaf nýlega út plötuna Narrow Stairs og hefur hún verið á repeat síðan, meiriháttar plata og óhæt að mæla með henni.  Látum 2 lög fylgja með, það er reyndar erfitt að velja bara tvö lög en tékkið á þessu...

Death Cab for Cutie - You can do better than me
Death Cab for Cutie - Long division

Torres

 
Smá fréttaskot úr Marteinslauginni
miðvikudagur, 21 maí 2008

Allir bara nokkuð hressir, nema kannski Bjarki en maginn er ekki orðinn alveg nógu góður og kvartar hann oft undan því en vonandi fer hann að verða góður.  Að öðru leiti er hann bara kátur, stækkar og þyngist vel og er duglegur og stundum full kröftugur.

Ásta er hins vegar ávallt hress og kát og stækkar og stækkar og er svakalega dugleg.  Hún kann að telja upp í 14 (veit ekki af hverju 14...) og þekkir marga bókstafi.  Svo er hún komin úr rimlarúminu og í stórt rúm og bangsímon veggmyndunum hefur verið skipt út fyrir Dóru og vini hennar.  Svo var stórt skref tekið á sunnudaginn en þá fórum við í Húsdýragarðinn og þar gaf Ásta kálfunum allar duddurnar sínar, ótrúlegt en satt.  Hún hefur 2x beðið um duddu síðan en ekkert meira, Ásta bara hætt að nota snuð, dugleg stelpa...

Af foreldrum þeirra er svo ekkert að frétta, bara ljómandi hress.  Látum nokkrar myndir fylgja þessu fréttaskoti.  Myndir úr nafngiftarveislunni hans Bjarka eru komnar í albúið og svo fara Maí myndirnar að detta inn, þegar maí verður allur...

Ásta gefur kálfunum duddurnar
Kálfarnir eiga orðið helvíti gott safn af snuðum...

Bjarki
Bjarki er farinn að brosa, litli fallegi kallinn

Ásta og hvolpur
Ásta fór með pabbi sínum og Múlaborg í sveitaferð um daginn

 
Eldaðu maður!
miðvikudagur, 07 maí 2008

Ed hefur ekki verið þekktur fyrir færni í eldhúsinu, nema kannski í að borða og ganga frá en nú verður breyting á.  Mín elskulega tengdamóðir gaf mér fína bók í afmælisgjöf, sem ég ákvað reyndar að skipta í bókina Eldaðu maður en hún er hálfgert námskeið fyrir karlmenn (sem ekkert kunna að elda) í eldamennsku.  Helstu réttir sem Ed hefur boðið upp á eru hakk og spagetti, grýta, burrito, (of mikið hakk?), grillaðar kjúklingabringur og pasta með beikonsónu - lengra nær ekki kunnáttan, allavega ekki mikið lengra.

Takmörkuð kunnátta er ekki aðal vandamálið heldur kannski frekar hræðslan (já og kannski líka framtaksleysi) við að prufa eitthvað nýtt og líta í uppskriftabók en þær eru bara svo fjandi ógnvekjandi.  En í bókinni Eldaðu maður er þetta þægilega sett upp og látið líta út fyrir að vera auðvelt, og skemmtilegt.  Ég er búinn að lesa hana spjaldanna á milli og er tilbúinn í þetta.  Einn réttur hefur þegar verið eldaður, einfaldur kjúklingaréttur og tókst hann bara nokkuð vel, allavega fannst Önnu og Ollu hann mjög góður, eða var það kannski bara jákvæð styrking.

Allavega þá er kviknaður áhugi á að gera eitthvað spennandi í eldhúsinu og kannski kominn tími til, enda hefur eldamennskan ekki verið upp á marga fiska hingað til, aðallega hakk...

Eldaðu maður!

 
Bjarki
föstudagur, 02 maí 2008

Jæja, þá er komið nafn á kappann.  Við héldum nafngiftarveislu í Marteinslauginni í gær þar sem nafnið var tilkynnt, nema hvað, og heitir litli strákurinn Bjarki.  Allir voru ánægðir með þetta fallega nafn, nema Aron en hann vildi að hann héti Brjóstsykur, af því að hann er svo sætur.  Held að hann hafi samt verið sáttur með nafnið á litla frænda sínum.

Ásta og Bjarki heita sem sagt litlu fallegu ormarnir okkar, hljómar bara nokkuð vel, er það ekki...

The Eds

 
© El Dorado 2001-2007 íMail