|
föstudagur, 18 apríl 2008 |
|
Getur verið að dálæti mitt á Scrubs sé að brengla dómgreind mína og smekk á tónlist? Ég er með lag á repeat þessa dagana sem er með Dashboard Confessional og heitir Stolen. Málið er að lagið er notað í mjög dramatísku atriði í 6. seríu og lagið einhvern vegin smell passar við atburðarásina. Það er nefnilega ótrúlega cool hvernig þeir nota tónlist til að gera atriðin áhrifaríkari. Hvað finnst ykkur, er ég búinn að tapa mér í þessari Scrubs-maníu minni eða er þetta bara gott lag...? Dashboard Confessional - Stolen Hér má sjá þetta atriði. Ég læt hér annað lag sem var í Scrubs fylgja með. The Fray - How to save a life ...og hér er það í Scrubs. Æi annars, mér er sama hvað ykkur finnst, þetta er cool lag... ;o)
|
|
|
Fréttir úr Marteinslauginni |
|
miðvikudagur, 16 apríl 2008 |
|
Héðan er allt gott að frétta. Litli strákurinn sefur bara og sefur, á milli þess þegar hann fær sér í svanginn hjá mömmu sinni. Hann var skoðaður og vigtaður í gær og hann hefur þyngst um 300 gr síðan á föstudaginn, fær greinilega nóg að drekka. Stóra systir er rosalega ánægð með litla bróður sinn og finnst þetta allt saman voðalega spennandi, það fyrsta sem hún gerir þegar hún kemur heim úr leikskólanum er að finna hann og helst vill hún klappa honum og kyssa hann. Svo verður hún svaka montin þegar hún fær að halda á honum. Pabbinn fer að vinna í næstu viku þannig að þau mæðginin verða bara tvö heim í rólegheitunum. Það er dásamlegt að vera orðinn tveggja barna faðir... Nýjar myndir fara að detta inn fljótlega. 
|
|
|
Nokkrar myndir komnar inn |
|
þriðjudagur, 08 apríl 2008 |
|
Allt gott að frétta úr Marteinslauginni, litli strákurinn er mjög kátur og er duglegur að drekka en mætti þó sofa meira á nóttunni. Myndir frá fyrstu dögunum eru komnar í myndaalbúmið Ástu. Þangað til næst...
|
|
|
laugardagur, 05 apríl 2008 |
|
Litli bróðir kom í heiminn í gær hérna í Marteinslauginni kl. 19:42, 13 merkur og 51 cm. Fæðingin gekk rosalega vel og heilsast honum og mömmu hans mjög vel, pabbanum og stóru systur líka. Við setjum inn fleiri myndir þegar tími gefst. 
|
|
|