Ungur fyrir aldur fram
fimmtudagur, 27 mars 2008

Ég á 20 ára fermingarafmæli í dag, eða í gær man ekki alveg.  Þýðir þetta að ég sé orðinn gamall...?  Allavega, þegar ég fattaði þetta þá hljómaði það mjög furðulega, 20 ára fermingarafmæli og ég sagði við sjálfan mig upphátt, vá hvað ég er gamall.

En er ekki aldur afstæður annars, ég verð orðinn tveggja barna faðir í næsta mánuði og lífið rétt að hefjast fyrir alvöru, þannig að ég græt mig ekki í svefn.

Annars bara góður...

 
Páskafríið óplanað?
mánudagur, 17 mars 2008

Ekki ennþá búin að ákveða hvert á að fara um páskana?  Langar á skíði?  Þá er þetta einfalt, þið eruð að fara á Siglufjörð.  Ekki alveg sannfærð, kíktu þá á þetta, myndir af skíðasvæði Siglfirðinga, gönguskíðasvæðið í Hólsdal og svo eitt glæsilegasta skíðasvæði landsins, skíðasvæðið í Skarðsdal.

Skíðasvæðið í Skarðsdal - mynd: Lífið á Sigló

Dagskráin er hér og ef ykkur vantar gistingu þá er páskatilboð á Gistihúsinu Hvanneyri.  Það er alltaf gaman á Sigló.

Skilið kveðju til ömmu og afa frá mér...

 
Fráhvarfseinkenni?
miðvikudagur, 12 mars 2008

Er maður ekki illa haldinn þegar manni dreymir glænýjan þátt af Scrubs? Mig dreymdi nefnilega í nótt nýjan Scrubs þátt, sem er sennilega síðasti Scrubs þátturinn því í þættinum var Dr. Cox hættur á Sacred Hearts og orðinn bóndi einhversstaðar út í sveit og J.D. búinn að gifta sig, hvorki Elliot né Kim.  Kannski það besta við þáttinn var að ég var einhvern veginn hluti af honum, fór t.d. með J.D. og Elliot til Dr. Cox að reyna að fá hann til baka en það tókst ekki, Dr. Cox endar sem bóndi.

Já þetta er steikt en verður bara að duga fyrir mig fram til 10. apríl en þá verður loksins sýndur nýr Scrubs þáttur, sem verður vonandi sýndur á EdTV þann 11. apríl...

Leyfum svo smá sögu af Ástu fylgja með.  Anna er eitthvað að brasa í eldhúsinu og Ásta þarf að pissa:

Ásta:  Mamma, ég þarf að pissa.
Anna: Já farðu og pissaðu, ég kem eftir smá stund.
Ásta: Nei, mamma koma núna.
Anna:  Nei, ástin mín, farðu og pissaðu og kallaðu svo á mig þegar mamma á að hjálpa þér...
Smá stund líður og svo kallar Ásta hátt og snjallt:  Mamma!  Hjálp!

 
Nú er tíminn
föstudagur, 07 mars 2008

Ekki mikið í gangi hjá okkur þessa dagana, bara rólegheit og beðið eftir komunni.  Lögð hefur verið inn beiðni til mannanafnanefndar um að fá nafnið Fernando samþykkt, geri ráð fyrir því að það verði samþykkt enda Fernando á allra vörum þessa dagana.

Varðandi morgundaginn, þá langar mig að vitna í skáldið Damien Rice:  "Time is contagious, everybody's getting old..."

Opið hús verður á milli 15:00 og 17:00 þar sem horft verður á Fernando skora þriðju þrennuna í þriðja heimaleiknum í röð, svona í tilefni dagins...

Har de bra.

 
© El Dorado 2001-2007 íMail