|
föstudagur, 22 febrúar 2008 |
|
Ásta hefur ótrúlega gaman af Pétri og úlfinum þessa dagana, biður reglulega um að fá að hlusta á verkið. Við vorum að hlusta á það í bílnum á leiðinni heim í gær þegar þetta skemmtilega samtal átti sér stað: Bessi Bjarnason: "...og hann gleypti öndina í einum bita!" Ásta: Úlfurinn borðaði öndina. Ed: Já, kannski var hann bara svangur. Ásta: Úlfurinn bara borða kornfleks... Ég er alveg sammála Ástu, ef að úlfar eru eitthvað svangir þá geta þeir bara fengið sér kornfleks eða músslí já eða bara pantað sér pizzu, það er megavika. Góða helgi... 
|
|
|
miðvikudagur, 20 febrúar 2008 |
|
Ég held að ég hafi talað um þetta hérna áður en ég verð að minnast á þetta aftur. Af hverju er ekki hægt að kaupa einn leik hjá Sýn í staðinn fyrir heilan mánuð, ég hefði t.d. verið til í að borga 800 kall fyrir leik Liverpool og Inter í gær. Ef hefði ég fengið mér Sýn í gær þá hefði ég þurft að borga fullt verð en ekki bara fyrir þessa 10 daga sem eftir eru og síðan hefði ég þurft að taka mars mánuð líka. Ég er alveg viss um að þetta myndi virka vel og skila meiri pening í kassann hjá Sýn... Annars mjög góður sigur í gær, 2-0 en það er heilmikið eftir. Ég sá á LFC TV á mánudaginn umfjöllun um leik Liverpool og Inter Milan í evrópukeppninni 1965, Liverpool vann fyrri leikinn 3-1 á Anfield en Inter vann þann seinni 3-0 og komst því áfram. Í ljós kom að spænska dómaranum sem dæmdi leikinn var mútað, enda er það víst venjan þarna á Ítalíu, eins og flestir vita. Í fyrsta markinu dæmdi dómarinn óbeina aukaspyrnu en Inter skoraði beint úr henni og svo í öðru markinu var boltanum sparkað úr höndum markverjunnar og í markið. Eftir leikinn hljóp Tommy Smith að dómaranum og hellti sér yfir hann og þegar dómarinn hunsaði hann, þá sparkaði hann nokkrum sinnum í hann en dómarinn hljóp bara í sturtu án þess að gera neitt. Samsæriskenningarnar segja að Inter hafi borgað sjúkrahúsreikning fyrir dómarann en dóttir hans var víst mjög veik. Gera má því ráð fyrir því að Inter múti dómaranum í seinni leiknum og mun hann fara á kostum og tryggja Inter 3-0 sigur. Ekki nema Torres laumi inn marki á 90. mínútu og tryggi okkur sæti í 8-liða úrslitunum, þar sem við mætum Lyon... 
|
|
|
þriðjudagur, 12 febrúar 2008 |
|
Ed hefur nokkrum sinnum lent í verkföllum í gegnum tíðina, t.d. kennaraverkföllin ´84 og ´95. Einnig hafa nokkur verkföll haft áhrif á manns daglega líf, t.d. verkföll sjónmanna, ruslakalla, leikskólakennara, sundlaugavarða og bakara, til að nefna nokkur. Óhætt er þó að fullyrða að aldrei hefur verkfall haft eins gríðarlega mikil áhrif á mann og verkfall handritshöfuna í Hollywood, sem er nú að leysast, vonandi. Nú er eins gott að þessir gaurar setjist við tölvuna og skrifi eins og 20 handrit að Scrubs þáttum, ég er kominn með massív fráhvarfseinkenni, 3. umgangur af 1.-6. seríu er ekki að gera nóg fyrir mig. Koma svo...
|
|
|
þriðjudagur, 05 febrúar 2008 |
|
Síðustu tvær vikur hafa verið fjölskyldunni mjög erfiðir. Það er ótrúlega gott að finna hve marga vini við eigum í rauninni en við höfum fengið stuðning alls staðar að og það skiptir svo sannarlega máli á svona tímum. Takk kærlega allir, fyrir heimsóknir, símtöl, símskeyti, sms, tölvupóst og bara að hugsa til okkar...
|
|
|