|
Þá er vika liðin af 2008, jólin komin niður í geymslu og því er kominn tími á að loka árinu 2007 með smá uppgjöri. Byrjum á því helsta hjá The Eds: Heimsóttum París í byrjun maí - geggjuð borg, frábær ferð Ættarmót ömmu & afa á Ytri-Vík í Eyjafirði - allur hópurinn hittist í fyrsta skiptið í langan tíma Fórum með Herreros fjölskyldunni í útilegu í júní í Þakgil - fukum úr Þakgili en mjög skemmtileg helgi Löbbuðum Leggjabrjót með Elfu & Árna - létt og hressandi labb í sýnishornaveðri Eyjasigling á Breiðafirði - skemmtileg sigling þar sem örn tók fyrir okkur flugið og ávextir sjávar voru smakkaðir hráir Afmælisferð Betu - vinir Betu tóku hana í óvissuferð um Snæfellsnesið, borðað og gist á Hótel Búðum. Snilldarferð Höskuldur eyddi verslunarmannahelginni saman á Sellátrum - meiriháttar helgi Norðurlandsferðin - kíktum á Krókinn, Sigló og Akureyri Anna þrítug - merkilegum áfanga fagnað í góðra vina hópi í höfuðstöðvum SG 2 vikur á Krít - fínt frí á fallegri eyju Uppgötvun ársins: Scrubs, án efa. Af hverju var ekki búið að sýna Scrubs á EdTV áður? Bull ársins: Fráfall Mr. Föss. Hans verður sárt saknað, allavega sumsstaðar... Vonbrigði ársins: 2x 0-1 tap á Anfield fyrir erki óvinunum, bæði töp gríðarlega ósanngjörn Kvikmynd ársins: Eastern Promises. Viggo Mortensen fer á kostum sem rússneskur gangster Maður ársins: Zach Braff. Scrubs var sýnt hættulega oft á EdTV. Hlustuðum einnig mjög mikið á tónlist sem ZB benti okkur á. Tónlistin 2007 Lag ársins: Okkervil River - Unless it´s kicks og A Hand to take a hold of the scene (get ekki gert upp á milli) Önnur hressandi lög sem hægt er að nefna (í engri sérstakri röð: Bright Eyes - Make plan to love me Arctic Monkeys - Fluorescent Adolescent The View - Superstar Tradsman The Shins - Turn on me Seabear - Hostpital Bed I´m from Barcelona - We´re from Barcelona Wilco - Impossible Germany Kings of Leon - Fans Sprengjuhöllin - Keyrum Yfir Ísland Plata ársins: Okkervil River - The Stage names Aðrar sem komu til greina (í engri sérstakri röð): Wilco - Sky blue sky Arctic Monkeys - Favorite worst nightmare The Shins - Winching the night away Seabear - The ghost that carried us Megas - Frágangur Kings Of Leon - Because of the Times Arcade Fire - Neon Bible Mest spilaðasta hljómsveitin á árinu samkvæmt Last.fm: Arctic Monkeys Svona hljómar þetta einhvern veginn en þar sem að ég er orðinn svo gamall getur verið að eitthvað sé að gleymast, en þá verður bara að hafa það svoleiðis. Eins gott og árið 2007 var í El Dorado þá má gera ráð fyrir því að 2008 verði enn betra, enda er verið að fjölga í hópnum og því bara ennþá meiri hamingja í vændum. Hvað mig varðar sjálfann, þá er ekki annað hægt að segja en að ég sé einstaklega lánsamur náungi, á yndislega konu sem elskar mig og saman eigum við dásamlega stelpu sem er okkur allt. Lífið er alveg eins og ég vil hafa það. Er ekki smá væmni annars leyfð á svona tímamótum...?
|