|
föstudagur, 21 desember 2007 |
|
El Dorado fjölskyldan óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Vonandi hafiði það gott um jólin, borðið vel og mikið, lesið nokkrar bækur eða horfið á góðar bíómyndir og njótið þess að vera með fjölskyldunni - þetta er allavega dagskráin hjá okkur... 
|
|
|
þriðjudagur, 18 desember 2007 |
|
Jólin handan við hornið og allt að skella á. Við erum komin í jólabúninginn, eins og sést, og í bullandi jólastuði, enda veðrið búið að vera svo gott undanfarna viku, jólasnjórinn dásamlegur eins og í gamla daga á Sigló. Héðan er annars allt gott að frétta, allt að verða klárt, tréð meira að segja komið upp, grænt og glimrandi. Ásta er alveg að fíla þessa jólasveina sem eru alltaf að setja dót í skóinn hennar, aðalega pússl og fígúrur úr Bangsímon familíunni... Eníveis, variði varlega þessa síðustu daga fyrir jól, þeir geta farið illa með fólk... 
|
|
|
Í óspurðum fréttum er þetta helst... |
|
föstudagur, 07 desember 2007 |
| * | Ásta er hætt að nota bleyju, nema á nóttunni eins og er | | * | Vinsælasti þátturinn á EdTV þessa dagana er Forbrydelsen, danskur snilldar krimmi. Scrubs þó ekki langt undan, JD ávallt vinsæll. Dóra og Klossi koma sennilega þar á eftir | | * | It´s beginnin to look a lot like christmas. Ein jólakúla komin upp, snjórinn þó kominn á sinn stað og piparkökubakstur/skreyting um helgina | | * | Mannekla er á leikskólanum Ástu, núna er skellt í lás kl. 16:00 | | * | "Fræg poppstjarna" er byrjuð að vinna í Prodomo | | * | The Eds ætla að vera heima hjá sér um jólin, ekkert ferðalag | | * | Liverpool hafa skorað 21 mark í síðustu 5 leikjum, andstæðingarnir aðeins komið einu inn | | * | Þrátt fyrir stórtjón í kauphöllinni undanfarnar vikur hafa hlutabréf í El Dorado hækkað mikið, enda allt að gerast þar | | * | Deildarstjórinn á deildinni Ástu, Hvolpadeild, sagði okkur um daginn að Ásta væri að púsla púsl fyrir 4ja ára, litli snillingurinn... | Fréttir last þú...
|
|
|
fimmtudagur, 06 desember 2007 |
|
Jólalögin eru ávallt umdeild, sumir hreinlega þola þau ekki en aðrir byrja að hlusta snemma í nóvember. Ed er þarna einhvers staðar á milli, aðeins byrjaður að hlusta en þó sérvalin (eins og Húsavíkur hangikjkötið...) jólalög, það eru nefnileg til virkilega góð jólalög sem maður þarf hreinlega að hlusta á en svo eru líka til stórkostlega ömurleg jólalög. Sennilega er ekkert verra en þegar vitleysingar gera jólalög úr vinsælum popplögum, eins og var t.d. gert við Gente di mare. Undan tekningin hér er að sjálfsögðu Baggalútslögin flest, þau eru sér á báti. Meðal vinsælustu jólalaga hér í El Dorado eru m.a. Happy Xmas með John og Yoko, frábært lag, Last Christmas með Wham, flott lag þrátt fyrir hallærislega notkun á trommuheila, svo er The Christmas Song í flutningi Stevie Wonder mikið spilað síðustu dagana fyrir jól, svona til að ná réttu stemmningunni. Einnig hefur Nóttin var sú ágæt ein verið í miklu uppáhaldi en fyrir nokkrum árum komumst við yfir plötuna Svöl jól með tónlistarmönnum sem kölluðu sig Jólakettir og var fyrrnefnt lag á þeirri plötu í skemmtilegri jazz útgáfu. Ef þið hafið ekki heyrt þá útgáfu þá má smella hér til að heyra hana og svo ekki orð meira um jólalög... Svo ein slæm frétt í lokin. Þegar Ed var ungur pungur var Marco Van Basten í dýrlingatölu (og er enn) og var því mikil gleði þegar í ljós kom að Ísland lenti í riðli með Hollendingum. Búið var að gera drög að heimsókn Van Basten í El Dorado og undirbúningsvinna á fullu en svo komu þær hræðilegu fréttir að Basten ætlar að hætta með Holenska landsliðið eftir Evrópukeppnina næsta sumar og því verður ekkert af heimsókn Van Basten í Marteinslaugina. Vont mál...
|
|
|