Pabbahelgi
föstudagur, 30 nóvember 2007

Ásta er ein í kotinu þessa helgina með pabba sínum en mamma hennar og væntanlegur bróðir eru í Stokkhólmi í jólainnkaupum, þannig að það verður rólegt í Marteinslauginni. 

Það er sniðugt að senda konuna til útlanda til að græja jólainnkaupin, ég losna (að mestu leyti) við að kaupa jólagjafirnar og hún fær útrás fyrir verslunarþörfinni, allir sáttir.  Ekki það að það sé einhver kvöð að kaupa jólagjafir handa vinum og ættingjum, það er bara svo mikil geðveiki í verslunum landsins vikurnar fyrir jól en það er önnur saga og lengri...

Það er sem sagt partý á Mt. Ten um helgina!

 
Í tilefni dagsins
föstudagur, 23 nóvember 2007

Jú jú, það er föstudagur, allir í stuði bara.  Allt við sama heygarðshornið hérna, lítið að frétta en allt í gúddí, eins og skáldið sagði.  Kalt þessa dagana.  Þegar ég leit á veðurstöðina í gærmorgun sagði hún mér að það væri 7.4 stiga frost úti.  Damn, hugsaði ég og teygði mig í fjarstartið (gríðarlega mikilvægt þessa dagana) og ræsti bílinn, sem var orðinn heitur og góður þegar við Madeleine Peyroux lögðum af stað í vinnuna...

Við bjóðum oft upp á hressandi lög á föstudögum en í dag langar okkur að sýnar ykkur mynd sem við sáum í Kaupfélaginu í gær.  Mjög flott mynd, tekin við Hafravatn í vikunni.  Smellið á myndina til að sjá hana stærri og um leið farið þið inn í sýningarsal Kaupfélagsins, fullt af flottum myndum þar...

Friðarsúlan sér frá Hafravatni

 
.torrent
þriðjudagur, 20 nóvember 2007

Mikið hefur verið fjallað um íslensku torrent síðuna undan farið í fjölmiðlum, enda mjög umdeild síða þar á ferð.  Í gær var svo lögbannskrafa tekin til greina og síðunni lokað en að kröfunni standa Smáís, STEF, FHF og SÍK en þau vilja meina að á síðunni sé efni dreift á ólöglegan hátt, sem er næstum því rétt.

En þetta er samt mjög kjánalegt mál.  Torrent.is er ekki að dreifa efninu heldur eru þar aðeins upplýsingar um efni til niðurhalingar - það er kannski hægt að líkja þessu við smáauglýsingar DV, er ekki hellingur af þýfi auglýst þar?  Ætti þá ekki lögreglan að kæra eigendur DV og setja lögbann á blaðið?

Vissulega þarf eitthvað að gera í þessu en hvað er hægt að gera?  Er nokkuð hægt að stoppa þetta?  Núna þegar það er búið að loka torrent.is þá er efninu bara miðlað á öðrum torrent síðum, það er nóg til af þeim.  Næturvaktin er t.d. aðgengileg á sænskri torrent síðun núna og þar þarftu ekki einu sinni að vera skráður til að geta download-að þeim snilldar þáttum.

Annað gott dæmi um þetta er gamli góði Napsterinn, þegar því var lokað þá héldu menn að þetta væri búið en það spruttu upp fjölmörg svipuð forrit, t.d. LimeWire, BearShare og DCI.

Smáís og félagar eiga því fyrir höndum erfiða baráttu, held reyndar að hún sé töpuð fyrir fram...

Ha, ég?  Ég kaupi allt sem að ég horfi á, alveg satt...

 
TV
sunnudagur, 11 nóvember 2007

Sjónvarpsþættir eru gríðarlega vinsælir á EdTV eing og víðar og eru 95% þeirra frá bandaríkjunum, sem fékk okkur til að hugsa.  Af hverju eru ekki framleiddir fleiri sjónvarpsþættir hér á íslandi, og betri?  Það væri gaman að sjá íslenskann lögguþátt, sjúkradrama eða sjúkragrín, þáttaseríu um háskólalíf eða þætti sem gerast í viðskiptalífinu eða á dagblaði....

Það er alveg ljóst að það er nægur efniviður á íslenskum heimilum, nóg af drama að finna þar, framhjáhöld, sigrar og ósigrar, gleði og ógleði, hamingja, hommar og húsmæður og ofbeldi.  Spurning um að fá góðann rithöfund til að sjóða saman nokkur handrit...

Reyndar spurning hvort íslenskt drama eigi nokkuð heima í sjónvarpinu, fólk fær sennilega nóg af því heima hjá sér...

 
Time to play Föss
fimmtudagur, 01 nóvember 2007

Mucho typicalo Fösskvis hoy en dia.  5 lög og er spurt um flytjanda og nafn á lagi.  Ekki flókið, eða hvað?  Vinsamlegast sendið ágiskanir eða rétt svör á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it ...

Fösskvisið hljómar svona í dag.  Góða skemmtun og gangi ykkur vel, já og góða helgi...

 
© El Dorado 2001-2007 íMail