|
ţriđjudagur, 30 október 2007 |
|
Ed var að kaupa sér nýja tölvu og vantar smá aðstoð. Windows Vista er uppsett á tölvunni og er það ofursvallt stýrikerfi en það er smá vandamál, Vista vill ekki þekkja iPodinn, sem er vont. Kerfisstjóri El Dorado á ekki iPod þannig að hann hefur ekki lent í þessu vandamáli. Er ekki einhver þarna úti sem hefur lent í þessu og hefur leyst þetta skelfilega vandamál? Ed yrði afar þakklátur ef einhver hjálpað með þetta vesen en það er hræðilegt að geta ekki sett nýja tónlist á íPoddið...
|
|
|
föstudagur, 26 október 2007 |
|
Fösskvis í dag er ekki gott. Spurt er um ástæðu. Hvers vegna er ekki fösskvis í dag? Ef þú telur þig hafa svarið þá sendiru póst... Í sárabætur er gott lag með hljómsveitinni Okkervil River. Lagið heitir Unless it´s kicks og er stórgott, mikil stemmning og outroið, sem hefst 3:50 er mjög svalt, eini gallinn er að það er ekki nógu langt. Smelltu hér og hækkaðu í botn, það er föstudagur... Við lofum betra fösskvis eftir viku...
|
|
|
föstudagur, 19 október 2007 |
|
Föstudagsgetraunin síkáta bíður góðann dag. Mr. Föss spyr um nafn á lagi og nafn á hljómsveit, 5 stk af hvoru. Þeir sem fá fullt hús stiga fá í verðlaun hádegismat með Binga í Höfða eða kvöldmat með Ástu. Án gríns þá held ég bara að enginn nái 10 stigum en við sjáum til hvort það leynast snillingar þarna úti einhversstaðar. Góða skemmtun og gangi ykkur vel! Hér er Fösskviss dagsins. Svo er gaman að segja frá því að 7. serían af Scrubs hefst þann 25. okt í bandaríkjunum, 1. þáttur verður vonandi á EdTV 26. okt. Hvað gera J.D. og Elliot... 
|
|
|
miđvikudagur, 17 október 2007 |
|
Ed man þá tíð er hann var í grunnskóla Siglufjarðar, sennilega í kringum 1940, að þá var þrennt á hreinu, fótbolti var málið, rigningin var blaut og danska var það ömurlegasta sem til var. Ég veit eiginlega ekki af hverju en danska var talið tungumál djöfulsins, það var það fyrsta sem maður lærði um dönskuna, ömurlegt tungumál og leiðinlegt. Svona viðhorf er ekki gott fyrir unga drengi sem eru að fara að læra sitt fyrsta erlenda tungumál, enda þoldi maður aldrei dönskuna og var frekar lélegur í henni allt námið í gegn, frá 5. bekk í grunnskóla og til dan 212 í fjölbraut. Samt náði ég nú að verða stúdent í dönsku einhvern veginn en sennilega á Anna mestann heiðurinn af því en hún t.d. las fyrir mig heila bók í dan 202 og kom henni í hausinn á mér og ég náði áfanganum. Núna aftur á móti finnst mér danska mjög skemmtilegt tungumál, þó svo að ég kunni ekkert í dönsku, en mér finnst þetta vera heillandi tungumál. Sennilega á Örninn mestann heiðurinn á þessum viðsnúningi en þeir þættir eru mjög góðir og við horfuðm mikið á hinn hálf íslenska Hallgrím Örn Hallgrímsson leysa upp glæpahringi út um allan heim. Anton, Júlíus, Þórdís og Herdís - mig langar að biðja ykkur afsökunar, þið höfðuð rétt fyrir ykkur, dansk, det er dejligt!
|
|
|
föstudagur, 12 október 2007 |
|
Eftir langa bið snýr Fösskvis aftur, núna þó með breyttu sniði. Engin stigasöfnun mun eiga sér stað, heldur er hvert Fösskvis stakt og sér, sérstak og einungis til að hafa gaman af, enda eru föstudagar vinnudagar... Við hefjum leikinn með því að spurja um 3 lög og 3 flytjendur. Hér fyrir neðan eru 3 myndir og eiga þær að gefa vísbendingu um hvert lag. Þetta á nú að vera nokkuð borðliggjandi en við sjáum til. Föððkviðð lítur svona út í dag:  Lag 1
 Lag 2
 Lag 3
Mr. Föss er ryðgaður, gæti verið pínu langsótt en samt ekki. Svör skal senda á
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
. Gangi ykkur vel og góða skemmtun...
|
|
|
|