Prinsessan af El Dorado er 2ja ára í dag. Ótrúlegt hvað þetta litla kríli hefur breytt lífinu í El Dorado mikið á þessum tveimur árum, það snýst eiginlega allt um hana og við viljum ekkert hafa það öðruvísi. Í tilefni dagsins fer hún með 17 gular blöðrur á leikskólann en afmælisveislan verður þó ekki fyrr en á laugardaginn. Ásta er snillingur...
Krítarferðin var fín, þó ekkert mikið meira. Hótelið var ekki alveg það sem við bjuggumst við, maturinn var yfirleitt vondur en sólin skein og bjórinn var ódýr og kaldur þanning að þetta þokkalegt bara. Þetta er falleg eyja með mikla sögu, við t.d. kíkkuðum á borgarrústir Knossos sem eru allt að 9000 ára gamlar, magnað að koma þangað. Annars var þetta bara týpísk sólarlandaferð, tjill við sundlaugarbakkann eða á stöndinni. Lásum þrjár bækur, drukkum bjór og hvítvín, Ásta skemmti sér vel og allir eru brúnir og sætir, allavega stelpurnar...
Ásta er farinn að tala meira og meira og alltaf bætist í orðaforðann. Alltaf þegar við þökkuðum þjónunum fyrir heyrðist í Ástu, teinkjú, mjög fyndið.
Annars var mjög gott að komast heim, eins og eftir öll frí, enda er heima best, eins og skáldið sagði forðum. Myndir úr ferðalaginu koma í myndaalbúmin fljótlega.
Tók einhver eftir því að Liverpool vann ekki leik á meðan að ég var í fríi...?
Bara rett ad kasta kvedju a klakann. Vid hofum tad virkilega gott her a Krit, yfirleitt um 30 stiga hiti og gola, sem er naudsynleg. Asta er alveg ad fyla tetta lif, buslandi i laugunum (ekki enn torad i sjoinn), hlaupandi ut um allt og heillandi alla upp ur skonum.
Anna keypti ol fyrir hana og eru taer bundnar saman tannig ad tegar vid forum i baeinn a kvoldin ta stingur Asta ekkert af, mjog taeilegt en tetta vekur mikla athygli og allir horfa og brosa og flestir segja eitthvad vid okkur. Ef Anna vaeri med dauda rottu i bandi ta vaeri sennilega horft minna...
Sa a mbl.is adan ad einhverjir vegir eru ofaerir heima - gott ad vera i solinni...
Well, latum tetta duga og afsakid ad islensku stafina vantar, internet tengingin a herbergjunum er sennilega 28.8 kb/sek, nenni ekki ad taka tatt i tvi. Vonandi skilst eitthvad af tessu. Tangad til naest...
Mín glæsilega eiginkona, líf mitt og yndi, hún Anna Rós, er 30 ára í dag. Við Ásta óskum henni til hamingju með daginn og vonandi þið líka...
Svo er það bara Krít á morgun, sól og stemmning í tvær vikur. Gaman að segja frá því að hjón á okkar aldri frá Kúbu munu dvelja í Marteinslauginni á meðan...
Sjáumst eftir tvær vikur...
Fyrri hluti frísins búinn, komum heim á sunnudaginn eftir velheppnaða norðurferð. Það er alltaf gaman að koma heim á Sigló annað slagið, hitta ömmurnar og afa, gamla félaga og sjá fjöllin sem maður ólst upp við, ótrúlega notarleg sýn.
Það er oftast þannig að eftir svona ferðir að maður kemur heim þreyttari en þegar maður fór í fríið, 4 áfangastaðir, 4 mismunandi beddar, 4 sinnum tekið úr bílnum, 4 sett aftur í hann, getur verið þreytandi en þetta er bara hluti af þessu. Á laugardaginn er ferðinni heitið til Krítar, eins og fram hefur komið reglulega hér, og þá verður pottþétt slakað á...
Eitt það ömurlegasta sem skellt hefur verið í útvarp í manna minnum er án efa útgáfa Jóa og Simma af Mika laginu Grace Kelly. Orginallinn var ágætur í kannski 2 daga en þá var búið að ofspila hann í útvarpi og svo er þetta líka þannig lag að það bara hægt að hlusta á það tvisvar sinnum, kannski þrisvar. Eftir fjórfalda ofspilun þá ákveða Sigmundur og Jóhann að koma með nýja útgáfu sem verður til þess að lagið fer aftur í spilun og gerir allt heilbrigt fólk sturlað. Þarna skitu Sigmar og Jóhannes í brækur...
Það er alltaf gaman að vinna 6-0, þó svo að mótherjinn sé Derby...
Skellum svo inn mynd af Ástu í fríinu, heima hjá ömmu sinni á Fossveginum að hlusta á iPodinn, þó ekki Grace Kelly...