Well, þá er sumarið að vera búið og ekki seinna vænn en að skella sér í frí. Síðasti dagurinn í dag og svo 4 vikna frí. Vika fyrir norðan, nokkrir dagar í Borgarfirði, svo nokkrir dagar heima og svo 2 vikur á Krít, hljómar vel, ekki satt...
Vonandi hafið þið það gott á meðan við erum í burtu en við komum hress og kát til baka 22. september. Þegar ég stimpla mig út í dag og labba út í bíl, þá mun þetta lag heyrast og ég flauta með...
Later.
Rob Styles er klárlega rugludallur helgarinnar. Honum tókst að eyðileggja leikinn fyrir okkur. Þetta er ekki víti!
Svo sagði Mourinho orðrétt: "We have no divers." Alltaf sama helvítis fíflið...
Annars gott mark hjá Torres, sem með réttu átti að vera sigurmarkið...
Endum þetta boltatal svo á samúðarkveju. Það er næstum því að maður vorkenni Manjú mönnum, næstum því...
Föstudagur í dag, bara að lifa af eina vinnuviku í viðbót - 4 vikna frí framundan, með öllu tilheyrandi - heimaslóðir, Borgarfjörður og Krít. Kom úr fæðingarorlofi 14. ágúst 2006, hef ekki farið í frí síðan, fyrir utan nokkra mánudaga og föstudaga, alveg kominn tími á frí...
Góð helgi framundan, Kaupþingstónleikarnir í kvöld, Landsbanka- og Rásar 2 tónleikarnir á morgun, sem og menningarnótt og einnig brúðkaupið þeirra Láreyjar og Baldurs, verður sennilega mikið stuð þar...
Svo á sunnudaginn er fyrsti stórleikur ársins í enskaboltanum en þá fáum við Chelsea í heimsókn - eins gott að þeir verði étnir og sendir suður til London í ruslapoka...
Hér er svo hressandi föstudagsmynd, svona til að enda vikuna skemmtilega...
Róleg og þægileg tónlist á mánudegi, þurfum við ekki öll á því að halda, eftir erfiða helgi. Bæði lögin sem boðið er upp á eru úr Scrubs...
Brett Dennen - Ain´t no reasonJoshua Radin - Today
Loksins náði Liverpool að sigra í fyrstu umferðinni en það þurfti heldur betur glæsilegt mark til að ná þessum þremur stigum í hús. Liðið leit vel út og lofar góðu. Erfiður leikur gegn Toulouse á miðvikudaginn í forkeppni Meistaradeildarinnar en Toulouse gerði sér lítið fyrir og sigraði Lyon, frönsku meistarana, um helgina. Koma svo...
Annars gott að frétta af The Eds. Ásta farin að tala meira og meira, þekkir meira að segja þrjá liti, gulan, rauðan og grænan en hún kallar þá Dipsy, Lala og Po, sniðug. Svo kallar hún mömmu sína stundum Anna, sem er mjög fyndið...
Síðasta helgi var algjör snilld. Mikil stemmning í hópnum, staðurinn góður, útsýnið frábært, maturinn geggjaður (nema hvað) og bjórinn kaldur. Eins og áður hefur komið fram er Sellátrar ysta húsið í Tálknafirði, um 12 km frá bænum sjálfum og er því mjög afskekkt, ekkert gsm samband (nema reyndar í mínum síma, veit ekki af hverju...), rúv næst á langbylgju, sjónvarpið rétt sést og ekki nóg með það, allar klukkur í húsinu voru annað hvort bilaðar eða gengu á sínum eigin hraða, þannig að við vorum í okkar eigin heimi þarna, kannski svipað og í Lost, mjög skemmtilegt.
Annars var þetta týpískur Höskuldarhittingur, Mr. & Mrs. Smith sáu um matinn og við hin sötruðum vín höfðum það gott en þau eru sennilega besti kokkurinn sem ég þekki. Við strákarnir spiluðum póker þegar liðið var sofnað, fórum í golf þegar krakkarnir lögðu sig á daginn og ávallt var bjór við hönd, alveg eins og þetta á að vera.
Á meðan við vorm ekki í golfi eða að spila póker fórum við í leiki með krökkunum - langt síðan að maður hefur farið í Eina krónu, 1 2 3 4 5 dimmalimm og hlaupið í skarðið og svona leiki en það var virkilega gaman að prufa það aftur, maður var 10 ára aftur, fínt að prufa það.
Annars bara frábær helgi í alla staði og ljóst að við eigum eftir að heimsækja Sellátrar aftur. Tékkið á útsýninu frá klósettinu. Hér eru svo nokkrar myndir í viðbót en fleiri koma í albúmið síðar...Höskuldur - Ásta að horfa á Bangsímon á iPodnum - Nóg af barnapíum - Gítarinn var að sjálfsögðu með í för