Scrubs
miðvikudagur, 25 júlí 2007

Það hefur ekki gefist mikill tími undanfarið til að blogga en nýlega hófust sýningar á sjónvarpsþættinum Scrubs á hinni feikiskemmtilegu sjónvarpsstöð EdTV.  Hvert tækifæri sem gefist hefur hef ég heilsað upp á JD og félaga og á tæpum tveimur mánuðum hafa 4 seríur legið í valnum, aðeins tvær eftir.  Þetta eru snilldar þættir, steiktur húmor og frábær tónlist, blanda sem getur ekki klikkað.  Bíð spenntur eftir 5. og 6. seríu, spurning um að bíða aðeins með sýningar á þeim...

Nóg af afmælum þessa dagana.  Við Anna áttum 3ja ára brúðkaupsafmæli á mánudaginn (13 ára í það heila), Aron Ingi og Kristján Gottskálksson eiga afmæli á morgun, Valli á held ég afmæli á föstudaginn, Yngvi verður þrítugur á mánudaginn og svo er Beta þrítug í dag.  Vonandi er ég ekki að gleyma neinum.  Til hamingju allir...

Endum þetta svo á því að bjóða upp á lag.  Sprengjuhöllinn er búin að eiga vinsælasta lag landsins undan farið, Worry til spring eða Verum í sambandi eins og það heitir með íslenskum texta en þeir eiga fleiri frábær lög.  Svona fer fyrir stelpunum er frábært, textinn algjör snilld.  Niðurhalaðu því hér...

Scrubs

 
Global Warming
þriðjudagur, 17 júlí 2007

Var einhver að kvarta yfir hlýnun jarðar?   Svona á þetta að vera á sumrin, já og svona líka... 

Vamos ala playa!
 
Mynd dagsins
föstudagur, 13 júlí 2007

Sá þessa geggjuðu mynd í sýningarsal Kaupfélagsins um daginn og bara verð að sýna ykkur hana og mæli með því að þið kíkið í sýningarsalinn í Kaupfélaginu, þar er magt gott að finna...

The weeping river


Smellið á myndina til að sjá hana stærri

Vonandi verður Kaufffélagsstjórinn ekki kreisí þegar hann sér þetta...

 
Enski boltinn á Sýn 2
þriðjudagur, 10 júlí 2007

Sýn náði í vor enska boltanum af Skjársport (hét stöðin ekki það annars) með því að borga rugl verð eða rúman milljarð fyrir þessi 3 ár sem þeir fá sýningarréttinn.  Þetta er hrikalega mikil upphæð en hver þarf að borga fyrir þetta?  Áhugamenn og konur um enska boltann...

Áskriftin að enska boltanum  mun kosta 4390 krónur (færð 5% afslátt ef þú gerir 12 mánaða samning og eitthvað minna ef þú ert með Stöð 2 og/eða Sýn) en kostaði um 2400 á síðasta tímabili.  Þetta er gríðarleg hækkun og maður hugsar sig um tvisvar áður en maður kaupir áskrift að Sýn 2.  Hvað annað á maður að gera?  Fara á pöbbinn eða græja Skysports pakkann er kannski önnur leið en nokkuð dýrari en samt kemur til greina, enda lætur maður ekki taka sig svona í það ósmurt.

Hvernig væri ef allir slepptu því að kaupa Sýn 2 og færu bara á pöbbinn staðinn?  Þar er alltaf mikil stemmning, bjórinn kaldur og svo eru allir pöbbar reyklausir núna.  Látum 365 ekki vaða svona yfir okkur, hættum að versla við fyrirtækið og setjum það á hausinn...

Held nú samt boltasjúkt fólk láti sig hafa það og kaupi þessa áskrift á yfirsprengdu verði...

 
Hey Fernando!
fimmtudagur, 05 júlí 2007

Fernando Torres
Vertu velkominn til Liverpool og megir þú skora tonn af mörkum...

Torres
You´ll never walk alone!

Hmm, hver er þetta með Torres á efri myndinni...

 
Meira...
© El Dorado 2001-2007 íMail