|
föstudagur, 29 júní 2007 |
|
Arctic Monkeys Góða helgi...
|
|
|
1. útilega ársins - stutt ferðasaga |
|
miðvikudagur, 27 júní 2007 |
|
The Eds skelltu sér í útilegu með Herreros fjölskyldunni um helgina. Á föstudaginn tjölduðum við í Þakgili, sem er við rætur Mýrdalsjökuls, austan megin. Þakgil er mjög flottur staður, mikil náttúruperla. Það var mjög gott veður þegar við komum en á laugardeginum var orðið dálítið hvasst og endaði það með því að við flúðum moldrokið. Það var magnað að keyra frá Þakgili og að Laugarási (næsti viðkomustaður) því að moldrokið var svo mikið á suðurlandinu að maður sá varla á milli stika (ok pínu ýkt en þið skiljið hvað ég er að fara...). Sem sagt við tjölduðum á Laugarási seinni partinn á laugardaginn. Þegar við vorum að tjalda áttuðum við okkur á því að við vorum þau einu sem voru ekki á fellihýsi eða tjaldhýsi eða hvað þetta heitir nú allt saman. Ég bjóst alveg við því að einhver myndi biðja okkur vinsamlegast um að láta okkur hverfa af tjaldsvæðinu en við fengum að vera í friði þann tíma sem við vorum þarna. Veðrið var mjög gott og bjórinn líka. Á sunnudeginum kíktum við á Laugarvatn til Ívar sr. og svo á Þingvelli til Sigrúnar og co. og var veðrið þá sérstaklega glæsilegt, rúmlega 20 stiga hiti og nánast logn. Helgin endaði svo með því að okkur var boðið í grillveislu í R13, sem var mjög gott eftir að hafa borðað sitjandi á grasi eða kæliboxi alla helgina. Sem sagt, snilldar helgi, annars segja myndir meira en öll þessi orð en þær eru komnar í myndaalbúmið fræga, sem er hér hægra megin niðiri... .jpg)
|
|
|
fimmtudagur, 21 júní 2007 |
|
Langt síðan síðast, einkum vegna þess að mikið hefur verið að gera. Síðustu helgi eyddum við í Eyjafirði en þar var haldið upp á 75 ára afmæli ömmu og mættu öll hennar börn, barnabörn og barnabarnabörn, nema eitt, sem var staðsett í þýskalandi, af öllum stöðum. Helgin tókst mjög vel og var mikil stemmning í hópnum og nokkuð ljóst að þetta þarf að gera oftar en það er ekki nógu oft smalað þessu liði saman. Ásta skemmti sér konunglega enda fékk hún næga athygl, eins og við var að búast. Við kíktum í Hrísey á laugardeginu (ásamt mörgu öðru) og kom sú heimsókn mér nokkuð á óvart. Ég hafði komið þarna einu sinni áður en í þetta skiptið var ég alveg heillaður. Tíminn stendur í stað þarna, allt svo rólegt, allir svo afslappaðir, bara laid back andrúmsloft. Ég væri kannski ekki alveg til í að flytja þangað (ekki strax allavega) en væri til í að eiga smá kofa þarna til að kíkja í annað slagið. Ekki skemmir fyrir að þeir eru að fara að byggja golfvöll þarna... Mig langar að enda þetta á lítilli spurningu: Hvenær fer Benitez að versla? Við getum ekki beðið endalaust... 
|
|
|
Eru mótorhjólamenn heimskir... |
|
fimmtudagur, 14 júní 2007 |
|
...eða er þetta bara lítill hópur manna sem er að skemma mikið fyrir meirihlutanum. Samkvæmt þessari frétt þá virðist vera að flest allir mótorhjólakappar landsins séu fávitar. Hvað annað á maður að halda þegar maður les svona frétt, sérstaklega eftir að þetta gerðist í síðustu viku? Það er nokkuð ljóst að það er kominn tími á að mikið átak fari í gang til að stoppa þessa vitleysu áður en einhver lætur lífið í slysi þar sem hraðakstur mótorhjóla manns (eða manna) er valdurinn. Er kannski verið að bíða eftir því... Ég get vel ímyndað mér að það sé freistandi að skella hjólinu í 200+ en er þá ekki afgirt svæði bara lausnin á þessu? Þar geta þessu gaurar fengið útrás fyrir þessari þörf og drepið hvern annan þar. Þá eigum við allavegana ekki í hættu á að fá hjól í skottið... 
|
|
|
þriðjudagur, 12 júní 2007 |
|
Vífilfell er ekki í góðum málum þessa dagana. Auglýsingarherferðin þeirra með Coke Zero fékk falleinkun hjá Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og gæti það mál dregið dilk á eftir sér. Ekki nóg með, heldur eru The Eds hætt að drekka kók (komið í rúmlega 20 daga) og tapar Vífilfell gríðarlegum upphæðum á hverjum degi vegna þess. Eins og skáldið sagði: Dark are the days of now. Það er nú samt sól úti...
|
|
|
|