Sumarið komið?
þriðjudagur, 29 maí 2007

Fór á Pirates of the Caribbean: At World's End með Siggiman í gær.  Myndin er klukkutíma of löng, aðeins of mikið Hollywood fyrir mig og svo þegar ég út úr bíóinu rúmlega 11 hugsaði ég:  trúi ekki að ég hafi valið bíó fram yfir golf.  En það er örugglega fullt af fólki sem hefur gaman af svona myndum, enda er þetta ágætis afþreying, bara klukkutíma of löng...

Svo út í annað, ég hef ekki drukkið kók síðan 20. maí!  Ég!  Spáðu í það.  Meira að segja Anna líka.  Kókinu skipt út fyrir sódavatn, bjór og léttvín - góður díll...

Félagarnir í Travis eru búnir að senda frá sér nýja plötu, þá fyrstu síðan 2003.  Fyrsta hlustun lofar bara góðu, lagið Closer er mjög flott.  Samt er eins og þeir séu búinir að missa smá trúverðugleika en við sjáum til.

Hér er Closer, ef þið viljið...

 
Tabula rasa
föstudagur, 25 maí 2007

Góða helgi...

Tabula rasa
 
Vont bragð í munni
fimmtudagur, 24 maí 2007

Svekktur

Svona er boltinn...

 
Come on you Reds!!!
miðvikudagur, 23 maí 2007

Dagur allra daga.  Leikur allra leikja.  Sigur allra sigra.  You´ll never walk alone!

Come on you Reds!

KOMA SVO!!!

KOMA SVO!!!
 
Prodomo
föstudagur, 18 maí 2007

Prodomo er ný og glæsileg verslun sem er með allt það flottasta í ljósum, rofabúnaði og hljóð- og myndlausnum.  Ef þú ert að fara að byggja, skipta út innlagnaefninu, breyta lýsingunni, poppa upp hljóðakerfið í húsinu þínu eða bara fylgjast með hvað er að gerast í þessum bransa, þá skaltu kíkja við í Hlíðarsmára 1 og skoða nýjasta útspil S. Guðjónssonar...

Innlit/útlit kíkkaði upp í Prodomo um daginn og má sjá það hér (dragið kubbinn yfir endann á "spóla áfram" takkanum).

Prodomo

S. Guðjónsson

 Smá plögg í lok vikunnar.  Góða helgi...

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 10
© El Dorado 2001-2007 íMail