|
föstudagur, 27 apríl 2007 |
|
Í augnablikinu er slökkt á blogginu, það utan þjónustusvæðis eða Mr. & Mrs. Ed í rómantískri helgarferð í París. Vinsamlegast reynið aftur síðar, t.d. á miðvikudaginn... 
|
|
|
Friday, 20 April 2007 |
|
Samkvæmt almanakinu er komið sumar. Samkvæmt íslensku veðurfari er vetur, vorið rétt ókomið en ekki sumar. Sumardagurinn fyrsti er kominn frá því þegar rómverska tímatalið var ekki komið hingað (kom með kirkjunni, um miðja 11. öld) heldur héldu íslendingar sér tímatal sem hvergi var notað annars staðar í heiminum. Árinu var skipt í tvennt, vetur og sumar og virtist sem menn litu á sumardaginn fyrsta sem 1. dag ársins, aldur manna var talinn í vetrum og aldur húsdýra líka, sem gert er enn í dag. Því var dagurinn haldinn hátíðlegur og er enn í dag og margir gefa jafnvel sumargjafir. Er þetta tímaskekkja? Ætti ekki sumardagurinn fyrsti að vera bara 1. júní eða jafnvel 1. júlí? Nei, ég er á því að halda í svona gamlar hefðir, sérstaklega þær sem eru yfir 1000 ára gamlar... Það er því óhætt að segja Gleðilegt sumar! Menn mega bara ekki halda að það sé komið sumar...
|
|
|
Friday, 13 April 2007 |
|
Smá pæling varðandi síðustu vikur tímabilsins í boltanum. Gefum okkur það að Chelsea og Man Utd vinni sína leiki í FA-bikarnum um helgina og mætast þá í úrslitum á nýja Wembley, sem verður 19. maí. Gefum okkur líka það að Manjú vinni AC Milan í sinni viðureign í Meistaradeildinni og að Chelsea vinni Liverpool (ljótt að segja svona en skoðum þetta aðeins) og þá mætast liðin í úrslitaleik 23. maí í Aþenu. Chelsea og Manchester mætast svo í deildinni á Brúnni, þann 9. maí, sem gæti verið hreinn úrslitaleikur. Gangi þetta eftir þá mætast liðin 9. maí, 19. maí og 23. maí, allt úrslitaleikir. Þetta er nokkuð skemmtileg staða sem gæti komið upp... Reyndar gengur þetta ekki upp því að Chelsea tapar sínum leik í FA Cup en Manjú vinnur þann bikar, Liverpool vinnur svo Chelsea 3-2 samanlagt í Meistaradeildinni og leggur síðan Man Utd í Aþenu og sigrar þar með Meistaradeild evrópu. Chelsea verður svo að sætta sig við það að vinna bara deildina þetta tímabilið... 
|
|
|
Monday, 09 April 2007 |
|
Eins góð og öll frí eru (reyndar misjafnt) þá er alltaf fínt að komast aftur í vinnuna. Þetta páskafrí er engin undantekning, fínt 4ra daga frí og fínt að mæta aftur til vinnu. Páskum var eytt í faðmi fjölskyldunnar og Bright Eyes en þeir síðar nefndu voru að gefa út nýja disk sem er virkilega góður. Við hittum í rauninni ekki mikið af fólki því að allir vinir og fjölskyldumeðlimir sem búa nálægt okkur yfirgáfu bæinn en kannski var bara fínt að fá frí frá þeim líka. Annars fór fríið í göngutúra, Húsdýragarðin, bíómyndir, bækur og skipulagningu á Parísar ferðinni, sem nálgast nú óðfluga... Það hljómar kannski furðulega en það er 2 páskaegg óétin eftir þetta páskafrí, sem er í rauninni stórmerkilegt en reyndar voru páskaeggin 5 í upphafi páska. Það verður að fylgja með sögunni að ekkert þeirra var keypt, 3 komu með nýja bílnum, 1 með kókkippunni og það 5. vannst í afmælisveislu. Spurning um að skella þessu í frystinn og geyma til næstu páska...
|
|
|