Week end
föstudagur, 30 mars 2007

Hann var með þeim lengri síðasti mánudagur, var í rauninni 3 daga.  Blanda af þreytu, þynnku, kvefi og hori er ekki góð uppskrift fyrir almennann hressleika.  Í ofan á lag var smá stress í vinnunni en við vorum að skipta um símkerfi þannig að það þýddi ekkert að vera heima og væla.  En allavega, er orðinn þokkalegur núna og helgin bara að koma og allt í gír.

Lærdómurinn sem má draga af þessari viku er þessi:  Sama hversu slæmur mánudagurin er, þá er alltaf stutt í helgina...

Ein af frægari og vinsælli leikkonum í heiminum í dag og síðustu 5-10 árin virðist vera búin að tapa sér, eins og sjá má á þessum fjórum myndum, 1 2 3 4.  Vonandi að þetta hafi ekki áhrif á framistöðu hennar í vinnunni...

Páskafrí í næstu viku, hvað á að gera?  Sigló, Akureyri, París eða Róm - eða bara home sweet home...?

 
Mánudagur
mánudagur, 26 mars 2007

Úff, mánudagar eru oft ansi erfiðir en dagurinn í dag er mánudagur allra mánudaga.  Spurning um að byrja að drekka kaffi og hella í sig nokkrum lítrum.  Vonandi næ ég að halda mér á lífi fram að hádegi, ef það tekst þá ætti þetta að hafast...

Lúðurþeytarafélag Reykjavíkur var stofnað á þessum degi árið 1876 og er Lúðurþeytarafélagið talið vera fyrsta hljómsveit á íslandi.  Frábært...

Have a nice day...

 
Auglýsing
fimmtudagur, 22 mars 2007

Auglýsing

Ef þú verður á Sigló um páskana þá skellir þú þér á Bíó Café á skírdag og hlustar á þessa snillinga og drekkur þig fulla(nn), fátt skemmtilegra.  Smelltu á auglýsinguna til að sjá hana stærri...

Coverið gleymdist í gær, við bætum það upp með því að gleyma því líka í næstu viku, nóg að gera í skólanum þessa dagana.  Svo er gaman að segja frá því að Mr. Föss er að undirbúa sig fyrir kommbakk eftir páska.  Skál fyrir því...

 
Best gleymda leyndarmálið?
mánudagur, 19 mars 2007

Það var mynd af skíðasvæðinu heima á Lífinu á Sigló um helgina, ótrúlega flott mynd af glæsilegu skíðasvæði.  Ég hef tekið eftir því að það eru ekki margir sem vita af hve glæsilegt skíðasvæðið í Skarðsdal er en einhverra hluta vegna er mikið um skíðafólk í kringum mig, bæði vinir og kunningjar og svo í vinnunni.  Þetta fólk bölvar oft þessu snjóleysi (ekki vandamál núna) og þá er ég fljótur að spurja af hverju það skellir sér ekki bara á skíði á Sigló.  Svarið er yfirleitt það sama, er eitthvað varið í skíðasvæðið á Siglufirði?

Hvernig stendur á því að fólk veit ekki að á Siglufirði er eitt besta skíðasvæði landsins?  Það þýðir ekki að segja að það séu bara heimskir reykvíkingar sem halda það, því að svo er ekki.  Getur verið að það þurfi að markaðsetja Skíðasvæðið á Siglufirði betur?  Það  held ég.  Töluvert betur. 

Framundan er páskafrí og þá vill skíðafólk fara á skíði og því er tilvalið að auglýsa sig svolítið núna til að fá slatta af fólki í bæinn, sem þýðir peningur í kassann.  Mjög lítið hefur farið fyrir auglýsingum í fjölmiðlum undanfarið að á Siglufirði leynist eitt besta skíðasvæði landsins.  Reyndar einu auglýsinguna sem ég fann um Páksaskíðafríið á Sigló fann ég á heimasíðu Skíðafélagsins.  Vilja siglfirðingar kannski ekki fá milljón manns í bæinn...

Ef þig langar á skíði um páskana þá mæli ég með skíðasvæðinu á Siglufirði.  Hér eru upplýsingar um aðstæður og hér er dagskráin um páskanna.  Sennilega verður líka mikið um að vera í bænum, held meira að segja að rokkararnir í Plunge verði með stórtónleika í bíóinu.

Stelst svo til að birta myndina hans afa af Skarðsdalnum, stærri mynd fæst ef smellt er á myndina...

Skíðasvæðið í Skarðsdal

 
Búningur
miðvikudagur, 14 mars 2007

Hey Ya með Outkast var gríðarlega vinsælt lag á sínum tíma, mikið stuð og mikil stemmning í því og bara gott lag.  Því vorum við nokkuð hissa þegar við sáum gaur með kassagítar vera að kovera þetta lag en honum tókst bara nokkuð vel upp og því er Obadiah Parker hjá okkur í coveri vikunnar að þessu sinni.

Obadiah Parker er þriggja manna band en hér er Mat Weddle, forsprakki sveitarinnar, einn á ferð í maí 2006, vopnaður kassagítar, eins og fyrr segir.  Ekki mikið meira um þetta að segja...

Outkast - Hey Ya
Obadiah Parker - Hey Ya

The Eds annars bara í góðum gír.  Sumarið óráðið en Ed langar að ferðast innanlands í sumar, enda langt síðan landið var skoðað síðast.  Ásbyrgi er efst á listanum, svo Rauðisandur, Vestmannaeyjar, Hólshyrnan og nokkrir golfvellir...

Áður en sumarið kemur ætlum við hjónin í rómantíska helgarferð til Parísar en búið er að bóka ferð í lok apríl.  Það er löngu tímabært að sækja París heim, enda mjög spennandi borg.  Nú er bara að fara að læra nokkra franska frasa...

Champs-Elysees

 
© El Dorado 2001-2007 íMail