Kover
miðvikudagur, 28 febrúar 2007

Það er ekki alltaf gaman að heyra Bítlalög coveruð en stundum, eins og lag dagsins.  Al Green tekur I want to hold your hand og gerir það að sínu, eins og sagt er.  Í rauninni er þetta gjörbreytt lag, eitursvallt og sjóðandi.  Vá, svakaleg lýsing...

Um upprunalega lagið er ekki mikið að segja, þegar það kom út í byrjun árs 1964 í usa, þá breytti það heiminum, einfallt. Stórkostlegt lag.  Útgáfa Al Green er dæmi um frábært cover.  Ef þið hafið ekki heyrt þetta þá skuluð þið smella á linkana og hækka í botn...

The Beatles - I want to hold your hand.mp3
Al Green - I Want To Hold Your Hand.mp3

Það kannski dónaskapur að segja að það sé ekki mikið um upprunalegu útgáfuna að segja, það er endalaust hægt að spá í áhrifin sem lagið hafði á heiminn á sínum tíma, bæði tónlistar- og menningarlega séð.  Kíkkið á Wikipedia til á lesa meira um þetta, ef þið hafið áhuga, sem þið vonandi hafið, já og eigið að hafa...

Eru ekki annars bara allir í stuði, þrátt fyrir skítakulda...

 
Dæmigert vont cover
miðvikudagur, 21 febrúar 2007

Ómerkilegt kover í dag, alveg eins gott að sleppa því að kovera lög ef þú ætlar að gera þau svona.  Hér er Travis (man einhver eftir þeim?) að kovera gamla Queen lagið, Killer Queen en ég heyrði á sínum tíma að þetta væri í rauninni bara Fran Healy í karókí einhvers staðar í Japan.  Queen lagið er hrein snilld enda miklir snillingar þar á ferð en Travis lagið var bara uppfylling á einhverja smáskífu.

Við þetta má bæta að ný breiðskífa frá Travis er væntanleg í maí á þessu ári og verður áhugavert að heyra hana en þeir hafa verið í mikilli lægð undanfarin 5 ár.  Víð bíðum kannski ekki spennt en það verður fróðlegt að heyra hvað þeir eru að gera í dag...

Queen - Killer Queen
Travis - Killer Queen

Barcelona - Liverpool í kvöld, það er skemmst frá því að segja að Riise skorar sigurmarkið eftir sendingu frá Bellamy...

 
Snillingur fallinn frá
þriðjudagur, 20 febrúar 2007

Maður sem við eigum öll mikið að þakka er látinn.  Robert Adler var skapari fjarstýringarinnar.  Hvar værum við án hennar?  Legg til að við minnumst Adler með því að nota ekki fjarstýringar í dag...

Annars bara fín stemmning í Marteinslauginni.  Nýi vinnutíminn að gera góða hluti, gerir allt miklu auðveldara og skemmtilegra.  Fínt að hafa tök á því að gera þetta.  Svo er skólinn líka að gera gott mót, þó að þetta séu tvö kvöld í viku og annar hver laugardagur.  Sem sagt, allt í bullandi gír...

Snemma beygist krókurinn

 
Fréttagaman
fimmtudagur, 15 febrúar 2007

Það er ekki alltaf gaman af fréttum en í gær var ekki annað hægt en að hlægja.  Logi Bergmann var að lesa frétt um að Kurbanguly Berdymukhamedov hefði sorið eið sem forseti Mið-Asíulýðveldisins Túrkmenistans, framburðurinn nokkuð skondinn.  Svo kom næsta frétt sem Brynhildur Ólafsdóttir átti að lesa en hún gat það ekki sökum hláturs, mjög fyndið.  Þetta má sjá hér.

Þetta mætti gerast oftar...

 
Ábreiða vikunnar
miðvikudagur, 14 febrúar 2007

Koverið þessa vikuna er hressandi.  Það er ekki oft sem maður heyrir lög Sigurrósar koveruð en við rákumst á þetta lag á bloggsíðu um daginn.  We are scientist er bandarísk indie rokk band sem við vitum eiginlega ekkert um en hérna eru taka þeir lagið Hoppípolla, syngja á "íslensku" og allt, mjög skemmtilegt, þrátt fyrir 2-3 off tóna.

Hoppípolla með Sigurrós er stórkostlegt lag, ótrúlega mikil stemmning í því og manni líður alltaf vel þegar maður heyrir það.  Þetta er svona lag sem maður hækkar alltaf í botn þegar maður hlusta á það, reyndar eins og með öll lögin þeirra.  Þegar "...og ég fæ blóðnasir" kemur fæ ég alltaf gæsahúð...

Allavega, mjög áhugavert kover í dag, tékkið endilega á þessu...

Sigurrós - Hoppípolla
We are scientist - Hoppípolla

 
© El Dorado 2001-2007 íMail