Cover/Remake
miðvikudagur, 31 janúar 2007

Á miðvikudögum í vetur ætlum við að bjóða ykkur upp á cover lög.  Við ætlum að reyna að hafa þetta áhugaverð cover lög en ekki einhverjar karókí útgáfur hjá vitleysingum sem einungis eru að reyna að græða pening.

Fyrsta cover lagið sem við bjóðum upp á  var mest spilaðasta lagið hjá okkur árið 2006, We will become silhouettes með The Shins, lag sem The Postal Service flutti upphaflega.  Útgáfa The Shins er meiriháttar, hér strípa þeir lag elektró-pop-indie sveitarinnar TPS og gera þetta einfallt og skemmtilegt, kassagítarar, trommur og bassi.  Útgáfa TPS er nokkuð góð líka, lágstemmd í anda textans en The Shins gera lagið pínu kaldhæðnislegt, það hljómar eins og það sé rosalega gaman að vera til en lagið fjallar um afleiðingar kjarnorkusprengju.

The Shins eru mjög vinsælir hjá okkur, eiginlega ein af uppáhaldsböndunum okkar og The Postal Service fá líka þónokkra spilun en þeir sem ekki vita þá er Ben Gibbard annar helmingurinn af því bandi en hann er aðalgaurinn í Death Cab for Cutie...

Allavega, kíkkið á þessar tvær mjög svo ólíku útgáfur á sama laginu, það er alltaf gaman af svona...

The Postal Service - We will become silhouettes
The Shins - We will become silhouettes

Við höfum fengið nokkra pósta þar sem spurt er um Fösskvis - stefnan er að Mr. Föss hefji störf fljótlega en þó með breyttu sniði en það verður tilkynnt síðar...

 
Hvar eru arabarnir?
þriðjudagur, 30 janúar 2007

30. janúar og sjoppuglugginn að lokast, ekki margir seðlar í veskinu.  Allah ætlaði að senda okkur pening en hvað er að gerast?  Hvar eru arabarnir sem ætluðu kaupa titla og ennþá meiri frægð og frama?  Eru þeir fastir í sandstormi einhversstaðar í arabíulandi?  Eigum við virkilega að vinna þessar tvær deildir (FAPL & CL) með þessum mannskap sem við nú höfum?  Er það kannski ekki markmiðið...?

Nei án gríns, Señor Benites, ætlaru ekkert að kaupa, þarf ekkert að styrkja hópinn?  Þú hefur daginn í dag og á morgun til bæta úr þessu.  Drífa sig...

 

 
Er til vond tónlist?
miðvikudagur, 24 janúar 2007

Mates of state voru í græjunum í vinnunni í gær, ég spurði tvo vinnufélaga hvernig þeim fyndist þau hjónakorn.  Ógeðlega leiðinleg og ömurleg voru svörin.  Þar sem að ég hef eiginlega ekki hlustað á annað í næstum því mánuð þá var ég pínu hissa og varð nett pirraður þegar þau héldu áfram; þetta er bara hávaði.  Þá mundi ég eftir kommenti sem annar þeirra lét út úr sér um daginn:  "Bítlarnir eiga bara að hljoma í fermingarveislum og verslunarmiðstöðvum!"  Þegar þetta rifjaðist upp fyrir mér gat ég ekki annað en brosað út í annað, greinilega skildur Sigurjóni Digra þessi annars ágæti vinnufélagi minn...

Eftir smá stund fór ég að pæla, er til vond tónlist?  Er þetta ekki bara smekksatriði?  Er þetta mælanlegt?  Eru þeir sem hlusta á fm957 með vonlausan tónlistarsmekk eins og sigurjón digri?  Er tónlist Sigurrósar betri en t.d. það sem Á móti sól er að gera?  Aftur spyr ég, er það mælanlegt?  Býr hámenntaður tónlistarmaður, eins og t.d. Þorvaldur Bjarni, til betri tónlist en sá sem aldrei hefur farið í tónskóla?  Er lag sem inniheldur 7 hljóma, sjöundir, dimm, dúr og moll og allan pakkan betra en lag sem er bara t.d. GCD? Er þetta ekki bara smekksatriði...

Ég er reyndar á því að er til hellingur af fólki sem hefur ekki hundsvit á tónlist, eins og þessir tveir vinnufélagar mínir.  Það er meira að segja til fólk sem hlustar á Michael Bolton og Sugar Babes.  Er það kannski ekki bara allt í lagi, eða hvað...?

Sviðið svið

 
Felgarhléttan
mánudagur, 22 janúar 2007

Flott helgi að baki.  Við Ásta skelltum okkur í leikfimi í Hreyfilandi á meðan mamma hennar var á námskeiði.  Eftir leikfimina hófst undibúningur fyrir leikinn.  Siggi og Gosi mættu í marteinslaugina og sáu rauða herinn slátra bláum litlum köllum og var mikil stemmning.  Eftir leikinn sóttum við Ásta mömmu hennar og  fórum að skoða hús sem við vorum að spá í en síðan var brunað heim og eldað quesadillas og svo bara slappað af um kvöldið.

Í gær lá leið okkar í þjóðleikhúsið þar sem Skoppa og Skrítla voru með sýningu og skemmti Ásta sér rosalega vel og hélt athyglinni allann tímann, sem er nokkuð gott.  Þegar sýningin var búinn var skriðið upp í sófa og horft á leik arsenal og manutd.  Virkilega skemmtilegur leikur, mikil læti, flottur bolti og alltaf gaman að sjá manjú tapa.  Vonandi verður þetta til þess að manutd missi flugið og haldi áfram að tapa stigum en ef þeir gera það þá verðum við fljótir að hlaupa þá uppi, sjáum hvað setur...

Aðeins að tónlist í lokin.  Við getum einfaldlega ekki hætt að hlusta á Mates of state, sama hvað við reynum, Bring it back er einfaldlega fokking snilld og alltaf jafn gaman að hlusta á þau hjónakorn.  Reyndar hlustuðum við aðeins á Dikta um helgina en forsprakki hennar er Haukur Heiðar Hauksson en hann fór á kostum þegar synfó tók lennon í desember.  Þessi drengur er frábær söngvari og er platan þeirra mjög góð.  Samt var ég með títt nefnda Mates of State í eyrunum þegar þessi pistill var ritaður...

Var einhver að tala um hlandboltaævintýri...?

Ásta og Skoppa á góðri stund

 
Mynd dagsins...
föstudagur, 19 janúar 2007

Mynd

Góða helgi...

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 10
© El Dorado 2001-2007 íMail