Íþróttamaður ársins?
fimmtudagur, 28 desember 2006

Íþróttamaður ársins var kjörinn í gær.  Ég verð bara að segja að þetta val er út í hött.  Svo segi ég bara eins og góður vinur minn segir oft, That´s all I have to say about that, út í hött...

Svo að síðasta færsla ársins verði ekki bara neikvæð, þá bæti ég þessu við:  Árið 2006 var frábært ár, skál fyrir því!

Árið 2006 verður gert upp síðar.  Farið varlega í sprengjunum og sjáumst árið 2007...

Cheers man!

 
Gleðileg jól & úrslit í fösskvis
föstudagur, 22 desember 2006

Úrslitin í Fösskvis liggja nú loksins fyrir.  Raggoz og Snilldin áttu möguleika á sigri en Raggoz var með eitt stig meira en Snilldin.  Ég hélt að jólafössið væri mjög erfitt en það fór nú svo að báðir voru með allt rétt, þó sumir hafi haft meira fyrir því en aðrir.

Þeitta þýðir að sjálfsögðu að Raggoz er sigurvegari í Fösskvis þetta tímabilið og er hann vel að sigrinum kominn.  Snilldin kom svo í 2. sæti, G-strengurinn í 3. og sigurvegarinn frá því síðast, Beta endaði í 4. sæti...

Til hamingju Raggoz!  Verðlaunaafhendingin fer fram á annan í jólum...

Mr. Föss þakkar öllum keppendum fyrir drengilega og skemmtilega keppni.  Við snúum aftur í febrúar...

El Dorado fjölskyldan óskar ykkur öllu gleðilegra jóla og vonandi hafið þið það ógeðslega gott um jólin...

 
Nokkrar boltapælingar
miðvikudagur, 20 desember 2006

Liverpool eru loksins komnir á flug í deildinni eftir undarlega haustmánuði, þar sem að kvennaliðið spilaði útileikina.  11-0 í síðustu 3 leikjum; cleen sheet í síðustu 6 leikjum; sigur í 8 af síðustu 9 leikjum.  Við erum komnir í 3. sætið  og aðeins eftir að hlaupa 2 lið uppi, manjú að missa flugið og chelsea fer að missa menn í meiðsli, þannig að það er allt að gerast...

Hinn umdeildi heimslisti FIFA var birtur á mánudaginn og er nokkuð helvíti athyglisvert á honum.  Ísland er í 93. sæti og stendur í stað.  Það er mjög gaman að skoða liðin sem eru fyrir ofan okkur og í rauninni er hlægilegt að þjóðir eins og Eþíópía, Írak og Panama séu ofar en við á þessum lista.  Íslenskur fótbolti er ekki á miklu flugi þessa dagana, já eða árin...

FIFA birti einnig á mánudaginn niðurstöðuna í vali á knattspyrnumanni ársins og varð Fabio Cannavaro fyrir valinu.  Það er skrítið að Cannavaro hafi verði valinn fram yfir Ronaldinho og Henry en báðir áttu þeir stórkostlegt tímabil með félagsliðum sínum, Ronaldinho öllu betra þó.  Það er einnig furðulegt að Zidane varð í 3. sæti en það eitt og sér sýnir að þeir sem kjósa í þessu horfa alltof mikið til HM þegar þeir ákveða hvern þeir kjósa.  Ronaldinho er besti knattspyrnumaðurinn í heiminum í dag, ekki ítölsk fyrirsæta...

Þoka á Anfield Road
Þoka að störfum á Anfield í gærkvöldi...

 
Fösskvis - lokaumferð
föstudagur, 15 desember 2006

Það er komið að því - síðasta fössið í bili og spennan í hámarki.  Fyrir þessa lokaumferð eiga 3 möguleika á sigri.  Raggoz er með 128 stig, einu stigi meira en Snilldin og svo kemur G-strengurinn með 121 stig. Aðrir eiga sáralitla möguleika og eru því ekki nefndir hér...

Þar sem að við erum á leiðinni í jólafrí er vel við hæfi að hafa þetta jólalagafösskvis.  Sex jólalög hljóma og er spurt um nafn á flytjanda og lagi, 12 stig í pottinum og allir í stuði.  Svörin má senda með jólasveininum eða gegnum netið á steindor @sg.is.  Gangi ykkur vel og góða jólaskemmtun...

Loka Fösskvis er geymt á þessum fagra stað...

 
Tilviljun?
mánudagur, 11 desember 2006

Síðustu tvo laugardaga hef ég ekki geta séð leik með mínum dásamlegu púllurum sökum anna.  Kannski ekki merkileg staðreynd svona ein og sér en þegar maður skoðar úrslitin í þessum tveimur leikjum þá hlýtur maður að spurja sig hvort maður verði ekki upptekin næstu laugardaga líka.  Fyrir þá sem ekki vita hefur Liverpool unnið báða þessa leiki 4-0...

Svo eru jólin bara á sunnudaginn í næstu viku, magnað.  Þeim sem ekki eru komnir í jólaskapið vil ég benda á þessi tvo hressandi og jólastemmningaraukandi jólalög:

Botnleðja - Ave Maria
Baggalútur - Kósíheit par exelans

hó hó hó

 
© El Dorado 2001-2007 íMail