Heimskur er heimakær
þriðjudagur, 28 nóvember 2006

Það fer mjög í taugarnar á mér hvar Liverpool eru í deildinni en það fer miklu meira í taugarnar á mér þegar allir eru að tjá sig um hve lélegir þeir eru og svo framvegis.

Ég tel mig því knúinn til að benda á þá einföldu staðreynd að Liverpool, ásamt tjel$í, er með bestan árangur á heimavelli í vetur.  Já, við erum með betri árangur á heimvelli heldur en manjúfokkingnæted.

Ástæðan fyrir slakri stöðu okkar í deildinni er sú að aðeins Charlton, West Ham og manshitty eru með verri árangur á útivelli en við höfum aðeins náð 2 stigum af 21 mögulegu í vetur, sem er algjörlega óásættanlegt.  Einnig höfurm við aðeins skorað 1 mark í þessum 7 útileikjum...

Hver sem skýringin á slölkum árangri á útivelli í vetur er, þá er það morgunljóst að ef við ætlum að vinna þessa deild þá þurfum við að fara að vinna á útivelli líka.  Við byrjum á því næsta laugardag en þá sækjum við Wigan heim...

Já ég tel að við getum unnið deildina.  Vissulega erum við 14 stigum á eftir manutd en þeir halda áfram að tapa stigum (byrjuðu um helgina) því þeir eru ekki með nógu góðan mannskap (skiptingin á 85. mín gegn chelsea segir margt).  Það verður erfitt að ná í skottið á chelsea en við náum þeim á endanum.  Já þetta er langsótt en ekki útilokað...

LFC
 
Blásið í Föss
föstudagur, 24 nóvember 2006

Kári hefur heldur betur verið í jötunmóð undanfarið og því er við hæfi að bregða upp nokkrum tóndæmum þar sem menn eru að blása eins og þeir fái borgað fyrir það.  Tóndæmin eru 7 í dag og er spurt um nafn flytjanda og lags, 14 stig í pottinum.  Í síðustu viku voru næstum því allir með fullt prik og því á þetta að vera pínu erfitt í dag.  Hendið svörunum á steindór hjá sg.is...

Blásandi Fösskvis er hér...

Yfirstandandi tímabili í Fösskvis líkur 15. desember og eru því 4 föss eftir.  Um 5 keppendur berjast um sigurinn en það lítur út fyrir að sigurvegarinn frá síðasta tímabili sé dottinn úr leik og dottinn í það.  Annars lítur Topp 5 út svona:

Raggoz95
Snilldin91 
G-strengur90 
Ævar88 
Gotti82 

...og ef þú vissir það ekki, þá er mánuður til jóla, skál fyrir því.  Góða helgi...

 
Eldað með Gotta
miðvikudagur, 22 nóvember 2006

Fyrsti þátturinn sem EdTV framleiðir er kominn á netið.  Þátturinn var tekinn upp í sumarbústað á mýrunum í borgarfirði í lok október og er matreiðsluþáttur, eiginlega svar EdTV við bróður Bjarna Fel eða er hann sonur hans, skiptir kannski ekki öllu.

 Allavega, hér er kokkurinn Gotti að fara á kostum, á matseðlinum er humar og nautakjöt.  Matargestir að þessu sinni eru arsenalmennirnir Steingrímur og Sigurður.  Umsjónarmaðurinn kallar sig Ed en hann sá einnig um myndatöku, klippingu og eiginlega allt sem að þessum þætti kemur, nema handritið en það var ekkert handrit.

Ef þér leiðist þá eru hér 20 mínútur til að drepa tímann...

Eldað með Gotta 1. hluti
Eldað með Gotta 2. hluti
Eldað með Gotta 3. hluti

Næsti þáttur frá EdTV gæti verið tekinn upp á næsta fylleríi...

Í framhaldi af þessu má benda á að myndir úr veiðiferðinni eru komnar í myndaalbúmið en linkur í það er hérna hægra megin...

 
Nú er frost á fróni...
mánudagur, 20 nóvember 2006

Í þessu kuldakasti sem herjað hefur á okkur undanfarið hefur eitt tæki staðið sig hvað best og sýnt í rauninni að það ætti að vera skyldueign á hverju heimili.  Fjarstart er málið.  Að fara út í þennan skítakulda og inni í heitann bílinn er ekki bara dásamlegt, heldur líka nauðsynlegt fyrir lítil kríli.  Ef þú ert ekki með fjarstart í bílnum þínum þá skaltu fá þér slíkt apparat í dag...

Fyrsti skammturinn sem við fengum af snjó á þessum vetri var helvíti stór.  Að sjálfsögðu var ófært um alla borg, þar sem að langflestir kunna ekki að keyra í snjó og/eða eru á sumardekkjum, alltaf jafn gaman af því.  Við Ásta vorum hins vegar mjög ánægð með þetta í morgun og skelltum okkur bara út að leika, enda fyrsti snjórinn sem að Ásta kemst í.  Hún minnti þónokkuð á pabba sinn þegar hann var að æfa skíði í gamla daga en hún vildi bara borða snjóinn, sem er mjög skiljanlegt en snjór bragðast mjög vel.  Marteinslaugin var reyndar ófær í allan gærdag nema fyrir stóra jeppa og fólk á subaru en svo virðist sem að gaurarnir á moksturtækjunum hafi ekki vitað af þessari fallegu götu því allar götur í nágreninu voru mokaðar.  Sem betur fer erum við á Subaru..

Ásta í snjónum

 
Fösskvis og EdTV
föstudagur, 17 nóvember 2006

Fösskvis í dag er í boði EdTV en í dag spurjum við sjónvarpsþætti.  Sennilega hafa allir einhvern tímann séð þessa þætti og því ætti þetta að vera auðvelt í dag, vonandi.  Spurt er einfaldlega um nafn þáttarsins, 2 stig fyrir rétt svar, ekkert fyrir rangt.  Svör skal senda með pósti á This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it . Góða skemmtun og gangi ykkur vel...

Fösskvis í boði EdTV.

 ps. við biðjumst velvirðingar á lélegu sándi í dag en tækni var eitthvað að stRíða okkur...

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 11
© El Dorado 2001-2007 íMail