|
mánudagur, 30 október 2006 |
|
Samkvæmt íslenskri orðabók er skilgreiningin á krummaskuð þessi: "e-ð lítið og óverulegt, m.a. ómerkileg þéttbýlisbyggð". Ég er búinn að senda höfundi bókarinnar tölvupóst þar sem ég bað hann um að bæta þessu fyrir aftan "ómerkileg þéttbýlisbyggð": "og hvergi hægt að sjá enska boltann"... Veiðiferðin ´06 var í fullum gangi á mýrunum í borgarfirði og var ákveðið að skella sér í næsta þéttbýli til að sjá Liverpool leikinn, hljómar mjög einfallt, enda hægt að sjá enska boltann í öllum krummaskuðum landsins, meira að segja á tveimur stöðum á sigló. Eftir að hafa farið á öll veitingahús og alla pöbba í bænum og hringt á alla mögulega staði í nágreninu þá var það ljóst að Borgarnes er krummaskuð af verstu sort... Ljóst er að veiðiferðin ´07 verður haldin annars staðar en í borgarfirði. Frá veiðiferðinni ´06 verður lítið sagt, nema að hún var stórkostlega vel heppnuð í flesta staði og skemmtu menn sér konunglega, enda lifðum við eins og kongar þessa helgi. Reyndar brotnaði ég næstum því niður á laugardaginn þegar ljóst var að ég fengi ekki að sjá púllarana en á þeim tímapunkti voru ákveðnar stoðir í minni tilveru ekki nálægar: Anna og Ásta heima, gsm-inn týndur, iPodinn batterýslaus og slitinn strengur í gítarnum frá því kvöldinu áður. Þetta leit ekki vel út en með hjálp góðra vina (Ölver og Bakkus) komst ég í gegnum þetta og komst heill heim...
|
|
|
föstudagur, 27 október 2006 |
|
Þá er komið að því, núna fær enginn fullt hús. Þetta er greinilega búið að vera of létt en það hefur alltaf einhver náð fullu húsi, þangað til í dag. Ef svo furðulega vill tl að einhver nái öllu rétt þá skal ég éta hattinn minn. Erfitt en gaman, eins og Ný Dönsk sagði ´91, enda er alltaf gaman hjá okkur í Fösskvis. Spurt er eftir nafni á lagi og flytjanda, 16 stig í pottinum. Vinsamlegast sendið svörin á
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
. Hið erfiða Fösskvis er hér. Annars lítur Topp 5 einhvern veginn svona út: | Beta | 44 stig | | Raggi | 41 stig | | Gstrengurinn | 40 stig | | Ævar | 39 stig | | Piparsveinninn | 37 stig |
Á síðasta fundi var ákveðið að hætta að gefa Betu aukastig fyrir að vera fyrst til að svara, að beiðni Gabbakent...
|
|
|
Rússland - botnlaus tónlistarbrunnur? |
|
fimmtudagur, 26 október 2006 |
|
Rússarnir eru að gera góða hluti í tónlist, allavega sölu á henni. Síðan að rmh benti okkur á musicmp3.ru þá er þokkalega búið að uppfæra iPodinn, 21 diskur keyptur á 23 dollara, sem er um 1500 íslenskar krónur. Góð kaup. Keypti t.d. diskinn hans Togga á tónlist.is um daginn á 990 kall en það voru reyndar mjög góð kaup líka, því að diskurinn er frábær... Dæmi um nýtt efni á iPodinum: The Decemberist - The Crane wife Adem - Love and other planets Embrace - This new day Toggi - Puppy Lay Low - Please don´t hate me Neko Case - Fox confessor brings the flood Iron & Wine - Our Endless Numbered Days (2004) & The Creek drank the cradle (2002) Teddy Geiger - Underage thinking (gaurinn úr Love Monkey) Mest spilaðasta platan þessa dagana er Puppy, með honum Togga, hún er meiriháttar og alveg óhætt að mæla með henni... 
|
|
|
mánudagur, 23 október 2006 |
|
Nýja IKEA verslunin í Garðabæ er gríðarstór, eiginlega bara ófreskja. Ég var því ekki alveg á því að kíkja á kvikindið en þar sem að Ástu vantar kommóðu í herbergið sitt (undir lagerinn sem var keyptur af H&M í Köben) þá sló ég til. Við gerðum okkur því ferð í Garðabæinn og heimsóttum IKEA. Þetta er alltof stór verslun, við komumst samt í gegnum þetta (á klukkutíma), fundum fína kommóðu og svo annan hlut sem okkur vantaði. Bæði atriði áttum við að sækja á svokallaðann sjálfsafgreiðslulager, ok ekkert mál. En þegar við komum þangað voru báðir þessir hlutir búnir!!! Nýja verslunin hrundi næstum því við öskrin. Ekki í fyrsta skiptið sem mig langar til að myrða innkaupastjóra IKEA á íslandi. 2-0 fyrir íkea... 2-0 voru tölur gærdagsins. The Eds töpuðu 2-0 fyrir IKEA, svo töpuðu öll liðin okkar 2-0. Liverpool tapaði fyrir "#$%#!, Barcelona tapaði fyrir RM og svo tapaði AC Milan á heimavelli gegn Palermo... Já þetta var ekki góður dagur í gær...
|
|
|
föstudagur, 20 október 2006 |
|
Það er föstudagur og það þýðir bara eitt, Fösskvis. Í dag ætlum við að rokka þetta aðeins upp með því að leyfa nokkrum rokkgítarhetjum að spreyta sig. Sex lög í dag, spurt er efitr nafni lags og hljómsveitar, 12 stig í pottinum. Svona er Fösskvisið í dag. Umslag með svörum skal sent á
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
Ég ætla að leyfa mér að birta eitt komment (án efa komment vikunnar) sem kom með einu svarinu á föstudaginn en það átti ónefndur starfsmaður símanns: "Fjandinn hafi þig, Steindór Örvar Guðmundsson!! Ég er varla búinn að vinna handtak í morgun út af fössaranum. Fráhvarfseinkennin síðast vörðu langt fram á sumar, en nú er ég kolfallinn aftur og bíð skjálfandi eftir næsta skammti. Skramb." Góða helgi...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 1 - 9 af 11 |