|
fimmtudagur, 28 september 2006 |
|
...eftir viku!!! 6. október hefst keppni aftur í hinum vinsæla leik, Fösskvis. Fösskvis verður með sama sniði og á síðasta tímabili og ættu því allir Fösskvisarar að vera klárir í bátana. Fösskvis mun snúast aðallega um tónlist, kvikmyndir og sjónvarpsþætti en einnig verður reynt að koma sportinu inn í þetta og jafnvel stjórnmálum, þar sem að það verða nú kosningar í vor. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í Fösskvis...
|
|
|
fimmtudagur, 28 september 2006 |
|
Eins og kannski flestir vita þá kom Ómar Ragnarsson með þá hugmynd að hætta við að stífla Jöklu og láta mannvirkið standa autt og leyfa síðan fólki að skrifa nafn sitt á stífluna gegn gjaldi. Mér finnst þetta snilldar hugmynd, að láta virkjunina standa auða, sem tákn um þjóð sem reif sig lausa úr virkjunarstefnu sem stjórnvöld höfðu fylgt í 50 ár, stjórnvöld sem héldu að eini möguleikinn væri að virkjun... Vissulega væri þá verið að henda einhverjum 100 milljörðum eða hvað sem þetta kostar en það er vel þessi virði... 
|
|
|
Vinsælustu lögin í El Dorado í sumar |
|
þriðjudagur, 26 september 2006 |
|
10 vinsælustu lögin hjá okkur í sumar 1. The Shins - We will become silhouettes 2. The Racounteurs - Together 3. Death Cab for cutie - Soul meets body 4. Nylon - Losing a friend 5. The New Pornographers - Sing me spanish techno 6. Ben Gibbard & Andrew Kenny - Farmer Chords 7. Jack Johnson - Upside down 8. Dirty Pretty Things - Bang bang you´re dead 9. Death Cab for cutie - I will follow you into the dark 10.Bright Eyes - First day of my life Já, kannski furðulegt að coverlag (Postal Service) frá 2003 sé vinsælasta lagið hjá okkur í sumar en þetta er bara svo ótrúlega gott lag. Við komumst yfir allt safnið frá Postal Service um daginn og þar var að finna þetta lag með The Shins og við bara getum ekki hætt að hlusta á það. Tékkið á því hérna... Annars var Ben Gibbad tónlistarmaður sumarsins en við hlustuðum mjög mikið á Death Cab, Postal Service og Home Volume 5, plötuna þeirra Ben Gibbard og Andrew Kenny. Þetta var gott tónlistarsumar... 
|
|
|
mánudagur, 25 september 2006 |
|
Já hún er eins árs, prinsessan okkar í dag. Þetta er heldur betur búið að vera viðburðaríkt ár og mjög skemmtilegt. Auglýsingastofan okkar bjó til þessa samsettu mynd í tilefni dagsins... Á laugardaginn var haldin veisla henni til heiðurs og mættu um 30 manns og var að sjálfsögðu mikið fjör og ekki leiddist Ástu öll athyglin. Hún bað mig að skila kveðju til allra og þakka fyrir sig... Myndirnar, bæði frá Lanzarote og úr afmælisveislunni eru komnar úr framköllun og eru þær í myndaalbúminu hennar Ástu...  Til hamingju með daginn Ásta!
|
|
|
fimmtudagur, 21 september 2006 |
|
Við komum heim frá Lanzarote á þriðjudaginn eftir frábærar tvær vikur, eða allavega 10 daga. Hótelið var mjög flott og öll aðstaða frábær og vel hugsað um börn þarna. Reyndar líkaði okkur svo vel við Lanzarote og Princesa Yaiza að við erum eiginlega búin að ákveða að fara aftur, fljótlega... Svo var það bara gamla rútínan í gær, klædd í rok og rigningu. Vengjulega hefði maður ekki verið ánægður með rok og rigningu en eftir tveggja vikna dvöl á grilli, þá var þetta bara kærkomið. Svo verður prinsessan eins árs á mánudaginn. Ég hef kannski sagt þetta áður en svakalega líður tíminn hratt, ég verð þrítugur áður en ég veit af... Myndirnar úr Lanzarote ferðinni eru í framköllun og fara beint í myndaalbúmið þegar þær verða tilbúnar. Talandi um myndaalbúmið, það er ekki ennþá búið að ákveða hvar og hvernig því verður komið fyrir á nýja svæðinu, meira um það síðar... Svo eitt í viðbót, ég áttaði mig á því í fríinu að ég kýs framsóknarflokkinn aldrei aldrei aldrei aftur. Aldrei.
|
|
|
|