Suður um höfin
þriðjudagur, 29 ágúst 2006

Ég fékk skemmtilegt símtal í gærmorgun. Fékk að vita að þann 5. september væri ég að fara til Lanzarote í tvær vikur ásamt konu minni og dóttur og búið að væri að redda fyrir mig fríi í vinnunni. Á línunni var Anna. Það verður seint sagt að hún sé fyrirsjáanleg. Reyndar ætlaði hún ekkert að segja mér frá þessu fyrr en um helgina en hún gat ekki ein sótt um vegabréf fyrir Ástu og því fékk ég að vita þetta í gær...

Við verðum á hóteli sem heitir Princesa Yaiza, sem er á suðurströnd Lanzarote, sem er nyrsta og vestasta eyjan í Kanaríeyjaklasanum. Lanzarote er aðeins um 100 kílómetrum frá Marokkó, þannig að þetta er mjög sunnarlega. Þetta hótel er ekkert slor, 5 stjörnu hótel og verðum við í svítu. Þetta verður frábært...

Princessa Ayaila
Hótelið lítur ekkert illa út...

Suður um höfin að sólgiltri strönd
svífur minn hugur, þegar kólna fer um heimalönd.
Og meðan ég lifi, ei bresta þau bönd,
sem bundið mig hafa við suðræna strönd

 
Haustdagskráin
miðvikudagur, 23 ágúst 2006

Nú þegar sumarið er að baki, er við hæfi að kynna dagskrá haustsins. Hún er þétt, eins og alltaf en þetta er kannski það sem ber hæst hjá okkur þetta haustið:

Fösskvis snýr aftur 1. september
Nýtt lúúk á El Dorado 1. september
Ljósmyndakeppni hefst 2. október (þemað er: Fullur)
Októberfestival í nóvember: Bjór vikunnar gerð góð skil allan mánuðinn
Jól 24. des

Sem sagt nóg að gera. Reyndar er seinni partur október óplanaður, þannig að ef þú hefur hugmynd þá endilega haltu henni fyrir þig...

Já, Fösskvis hefst í næstu viku, þannig að það er um að gera að fara að setja sig í stellingar og vera með frá byrjun. Bendi á linkinn hér til vinstri ef þið viljið rifja upp hvernig þetta gegnur fyrir sig...

 
© El Dorado 2001-2007 íMail